157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

erfðafjárskattur.

30. mál
[18:13]
Horfa

Flm. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og hann snertir á mörgum atriðum hér í spurningu til mín. Það er rétt að það er erfitt fyrir margt ungt fólk að komast inn á húsnæðismarkaðinn og við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við ungt fólk. Ég hafna því alfarið að þetta sé einhver leið sem er eingöngu sniðin að allra hæstu tekjuhópunum í þessu samfélagi. Ég þekki það sjálf og ég geri ráð fyrir því að hv. þingmaður geri það líka, að sem betur fer er það þannig núna að það eru margir í okkar samfélagi sem hafa það ágætt. Það eru margir sem eru ágætlega staddir fjárhagslega og við eigum að gleðjast yfir því. Við eigum að vera glöð yfir því og ég er fullmeðvituð um að þessu frumvarpi er ekki beint að tekjulægstu hópunum. Ég þekki bara fullt af fólki sem hefur verið í verkamannavinnu alla ævi. Það á peninga í handraðanum og það vildi svo gjarnan geta aðstoðað börnin sín þegar þau eru að fikra sig inn á húsnæðismarkaðinn af öllum mætti án þess að ríkið þurfi enn eina ferðina að ásælast og fara ofan í þessa vasa og taka til sín af þeim peningum sem ella gætu nýst þessum börnum.

Hv. þingmaður talar einnig um hávaxtatíð síðustu ára. Hún á sér vissulega skýringar sem ég ætla ekki að fara í en mig langar að minna hv. þingmann á að hann er í flokki sem lofaði því að hann ætlaði að berja niður vextina eins og ekkert væri um leið og hann kæmist til valda. Við erum enn að bíða eftir því. Ég er þess fullviss að hér legg ég til hugmynd sem fyrirfinnst í nágrannalöndunum okkar og m.a. er þetta lægri upphæð heldur en t.d. í Danmörku.