157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

erfðafjárskattur.

30. mál
[18:17]
Horfa

Flm. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég hef lúmskt gaman af þessari umræðu við hv. þingmann því að ég held að hér að kristallist mjög í okkar sjónarmiðum munurinn á þeim flokkum sem við erum í. Sem betur fer er það þannig að vitaskuld viljum við og eigum að grípa þá hópa sem standa höllum fæti. Við eigum stuðningskerfi hér á landi til þess. Fyrir því hefur Sjálfstæðisflokkurinn alla tíð talað. Þegar kemur hins vegar að eignum eins og dánarbúum, sem er svo sannarlega búið að margskattleggja í gegnum árin, þá finnst mér þetta ekki ósanngjarnt. Þetta er í flestum löndum í kringum okkur. Ég get nefnt sem dæmi að í Danmörku mega foreldrar gefa börnum eða barnabörnum árlega gjöf án skatts fyrir tæpar 1,4 milljónir á ári. Í Þýskalandi má hvort foreldri afhenda barni skattfrjálst á gengi dagsins í dag 57 milljónir, hvort foreldri fyrir sig 57 milljónir á tíu ára fresti. Foreldrar mættu því láta barn sitt hafa 114 milljónir á tíu ára fresti. Í Frakklandi mega foreldrar gefa börnum sínum 14 milljónir skattfrjálst yfir 15 ára tímabil. Í Svíþjóð er svo búið að afnema allan erfðafjárskatt og það er þangað sem ég vil helst stefna á að fara því við í þessu landi erum þrátt fyrir allt með eina mestu skatta á byggðu bóli. Þetta eru skattar sem ná út fyrir gröf og dauða og ég er bara ekki sammála þeim.