afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar fyrra svar hér. Það er náttúrlega þannig að við erum með einkaaðila á orkumarkaði dag. HS Orka og Arctic Hydro og fleiri fyrirtæki eiga nú þegar vatnsaflsvirkjanir og jarðhitavirkjanir og annað og ég tel að það sé gott. Ég tel að það sé gott að við séum með Landsvirkjun sem ákveðinn grunn en eigum líka að hvetja einkaaðila til að fara og fjárfesta í frekari orkuvinnslu. Það er vel að mínu mati. Ég var svo sem ekki alveg viss á því hvar þingmaðurinn stendur persónulega í afstöðu sinni til eignarhaldsins. Ég er að velta þessu fyrir mér af því að nú þekki ég til þess í mínu kjördæmi að þar eru uppi hugmyndir um vindmyllugarð þar sem sveitarfélagið er mjög fram um að vindmyllugarður rísi, í kringum Langanesbyggð. Auðvitað rís enginn vindmyllugarður ef landeigandi vill ekki að þar rísi vindmyllur. Við erum ekki í sósíalísku ríki. Eignarrétturinn er virtur þannig að ef einhver fer af stað og ekki er búið að fá leyfi landeigenda, sem ég held að sé nú ábyggilega í langflestum tilvikum, þá finnst mér það náttúrlega vera eitthvað sem er hægt að ræða.
Að lokum langar mig að spyrja hv. þingmann, af því að hún kom inn á að það ætti í raun einhvern veginn að vera pólitísk ákvörðun í hvað orkan er notuð og ég velti því fyrir mér: Ef ég fengi leyfi til að byggja vindmyllugarð er það þá ríkisstjórnarinnar að ákveða hver kaupandinn er eða í hvaða iðnað eða atvinnugrein orkan á að fara? Erum við ekki komin svolítið langt af leið þar, hv. þingmaður, (Forseti hringir.) ef við ætlum að fara að skipta okkur af orkumarkaðnum á Íslandi?