157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

afstaða forsætisráðherra til lóðaframboðs og svæðisskipulags.

[15:06]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra svarið þrátt fyrir að hún hafi í raun að mínu mati forðast að taka skýra afstöðu. Heimilin hafa ekki efni á óvissu í húsnæðismálum. Fram hefur komið að Flokkur fólksins hafnar því að eitt sveitarfélag geti í raun stöðvað uppbyggingu annarra en á sama tíma fullyrðir þingmaður samstarfsflokksins í Samfylkingunni að óbreytt vaxtarmörk dugi. Þetta ósamræmi þarf að útskýra. Fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu, eins og forsætisráðherra nefndi hér, hefur farið fram úr öllum forsendum svæðisskipulaga áranna 2015–2040 og aukning íbúa um 70.000 verður hraðari en gert var ráð fyrir. Er hæstv. forsætisráðherra sammála eða ósammála því að þessi hraða þróun, sem er í raun alger forsendubrestur fyrir skipulaginu, gefi tilefni til að yfirfara vaxtarmörk sveitarfélaga með heildstæðum hætti? En það þarf að fá skýr svör frá Samfylkingunni: Hvorum megin stendur hæstv. forsætisráðherra í dag, (Forseti hringir.) vill hún áframhaldandi kyrrstöðu eða er hún tilbúin að styðja frumvarp sem gefur sveitarfélögum aukið sjálfstæði til að ráða bug á húsnæðisvandanum?