kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Hér er boðað nýtt frumvarp um 7 milljarða kr. skattahækkun á bifreiðaeigendur, væntanlega á þessu þingi, fyrir jól á þessu ári, sem tekur kannski gildi á næsta ári.
Nei, virðulegur forseti. Ég tel mikilvægt að þingheimur fái nánari upplýsingar um nákvæmlega þessa skattahækkun í þinglegri meðferð á þessu máli vegna þess að þetta helst í hendur. Þetta mál varðar og kveður á um skattahækkun á bifreiðaeigendur, skattahækkun á heimilin í landinu og það er mikilvægt að þingheimur fái heildarmynd, heildarsýn, einhverja tilfinningu fyrir því hvað annað er í vændum. Hæstv. fjármálaráðherra hefur boðað hér skattahækkun með hækkuðum vörugjöldum á bifreiðar sem nemur 7 milljörðum. Það skiptir máli hvernig það er útfært. Er það hækkun vörugjalda á rafmagnsbifreiðar eða bifreiðar með jarðefnaeldsneyti? Þetta skiptir máli í umræðu hér vegna þess að neyslustýringin er svo gríðarleg í þessum málum, 6% vörugjöld á rafmagnsbíla, 60% á bíla með jarðefnaeldsneyti, (Forseti hringir.) og það skiptir máli að þetta liggi fyrir. Ég óska eftir því að hæstv. fjármálaráðherra útskýri frekar hvernig hann sér fyrir sér þessa skattahækkun á næstu vikum.