157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:49]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu. Það sem hvatti mig til að koma hér upp er að hún talaði um að hverfandi hluti bílaflotans væru rafbílar. Ég held að hún hafi aðeins runnið til á svellinu af því að það eru 51.000 bifreiðar á Íslandi sem eru rafbílar, það er um 18% af heildarfjölda íslenska bílaflotans. Það myndi ég ekki segja að væri hverfandi hluti, ég hef nú grun um að hún hafi farið línuvillt en það er nú bara eins og það er. Við erum nú þegar búin að setja þessar 51.000 bifreiðar inn í kílómetragjaldið og það hefur gengið nánast hnökralaust fyrir sig. Það voru einhverjir smá byrjunarörðugleikar en svo hefur þetta gengið vel.

Mig langar í fyrra andsvari — af því að ég náði ekki alveg afstöðu þingmannsins til frumvarpsins. Ég veit ekki hvort hún ætli sér að bíða eftir einhverjum heildaráhrifum og glöggva sig betur á einstökum þáttum. Ég veit það svo sem ekki. Ég var einhvern veginn alltaf að bíða eftir því að ég fengi svona sterkari tilfinningu fyrir því hvað hv. þingmanni finnst um frumvarpið. Mig langar líka að spyrja út í þessa stóru kerfisbreytingu sem hér er verið að fara með, hvort hún sé sammála því að þeir borgi sem noti. Er það hugmyndafræði sem henni líkar við og er hún til í að styðja mál sem ganga út frá þeirri hugmyndafræði? Það er kannski fyrsta spurningin og svo vildi ég bara leiðrétta þetta með rafbílana.