157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:54]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir svarið. Þetta var svo áhugavert sem hún kom inn á máli sínu. Hún var að spá í hver ætti að borga. Hvað með þá sem eru að lifa bíllausum lífsstíl, eiga þeir ekki að borga líka? Þar kemur þá að öðrum þætti sem við höfum kannski rætt líka í meðferð frumvarpsins. Það er auðvitað hækkun á vöruverði á landsbyggðinni með nýju kílómetragjaldi. Það er sá sem keyrir matinn í búðirnar sem borgar kílómetragjaldið, ég held að við munum kannski leysa það þannig. Ég veit ekki hvort hún sé sammála þeirri nálgun minni að sá sem rekur bílinn, hvort sem hann er að keyra mat eða ferja fólk, það er hann sem borgar kílómetragjaldið. Það leggst á hann en ekki þann sem lifir hinum bíllausa lífsstíl.

Ég taldi mig vera að eignast mikinn bandamann hérna í ræðu hv. þingmanns áðan, bandamanni sem ég leita statt og stöðugt að, bandamönnum sem vilja setja aukið fjármagn í viðhald vega. Ég er svo sannarlega talsmaður þess og ég var nú að vona að hún væri líka í þeim hópi en svo dró aðeins í land, hún vildi ekki setja allt það fjármagn sem við fáum af bílum í viðhald vega, en það má svo sem ræða það. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún sé ekki sammála því að það þurfi að verja þennan tekjustofn ríkisins til þess að geta staðið betur undir viðhaldi vega. Ég veit að hv. þingmaður ferðast eins og aðrir þingmenn og sér hvernig ástand vegakerfisins er. Það þarf 20 milljarða á ári til að standa undir viðhaldi vega og við eigum langt í land til að ná því markmiði. Þannig að ég vil spyrja: Er hún ekki sammála því að við þurfum að setja meira fjármagn í viðhald vega? Þurfum við ekki að standa vörð um þessa tekjuöflun ríkisins hvað þetta varðar?