157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:20]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta eru auðvitað allt saman útreikningar sem hæstv. ráðherra er náttúrlega miklu betri í heldur en ég, það þarf ekkert að fletta neinum blöðum um það. Ég held að við getum fjármagnað þetta með miklu skilvirkari og betri hætti heldur en með svona bútasaum. Ég held líka að það sé engin tilviljun að þetta er sú leið sem hefur verið farin í mörgum löndum miklu frekar og það er auðvitað ástæða fyrir því. Það er auðvitað einn af kostunum að þetta er kostnaður sem reiknast ekki inn í til að mynda verðið til ferðamanna þegar þeir ætla að taka ákvörðun um að ferðast til Íslands. Þetta er dulinn kostnaður sem lendir á þeim eftir því hvar þeir ferðast og þvælast um. En þegar þeir fara aftur á móti að panta bílaleigubílinn sem öll þessi gjöld eru komin á, kílómetragjöld og annað og þykja þeir nú dýrir í dag, þá verður það miklu dýrari og getur hreinlega fælt frá ferðamenn. Það er kannski eitthvert markmið í því, annað en bara að koma öllum í strætó. Það er kannski einhver markmið í því líka að draga úr ferðaþjónustunni. Það hefur alla vega heyrst frá hæstv. forsætisráðherra að hún vilji draga úr ferðaþjónustunni, gaf það svona í skyn.

Ég er alveg sannfærður um að það væri hægt að ná víðtækri sátt. Þetta mál hefur auðvitað gerjast í samfélagsumræðunni í dálítið langan tíma og menn hafa áttað sig á því að við verðum að stíga alvöruskref og ég held að það væri hægt að ná víðtækri sátt um þetta. Ég held líka að gjaldtakan gæti orðið tiltölulega sanngjörn vegna þess að við erum með svo vaxandi umferð. Það verður auðvitað síðan að fylgja þessu öllu eftir með framkvæmdirnar og það er ekki hægt að taka annað en undir það hvernig staðan er hér í Reykjavík; hvernig er búið að fara með samgöngumálin í Reykjavík er algerlega kapítuli út af fyrir sig og hefur áhrif á nágrannasveitarfélög. (Forseti hringir.) Tafirnar allar í umferðinni hér er út af stöðunni í Reykjavík. Það verður auðvitað að taka völdin af þessum flokkum sem hafa haldið utan um það rugl (Forseti hringir.) sem er búið að skapa í samgöngumálum innan höfuðborgarsvæðisins.