kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Það er rétt að ég taki það fram hér að ég átti auðvitað við strandsiglingar en ekki strandveiðar, sem mér eru vissulega hugleiknar. En hvað sem því líður þá getur þetta mál, eins og kemur fram, haft ýmsar hliðarverkanir. Við höfum flutningsjöfnunarsjóð hjá Byggðastofnun sem mun að einhverju leyti koma til móts við sérstaklega þennan þátt sem hv. þingmaður hefur áhyggjur af en það á kannski einkum við framleiðslufyrirtækin. Það skiptir mjög miklu máli að við höldum vöruverði á landinu sem jöfnustu. Ég held að það verði að horfa í þá þætti.
Auðvitað er rétt sem kemur fram í umræðunni að við verðum líka að treysta landsbyggðinni. Ég geld ákveðin varhuga við ýmsum hugmyndum sem hafa verið hér um áratugaskeið varðandi sameiningu embætta og að flytja alla stjórnsýslu á einn punkt því að það eru ákveðin sjónarmið sem skipta máli. Ef það á að flytja verkefni, t.d. segjum á Siglufjörð, þá skiptir auðvitað máli að það sé einhver aðili þar sem kalli eftir þeim, einhver sjálfstæður aðili, eða á Akureyri, að það sé stofnun þar sem kalli eftir þeim og haldi utan um þau verkefni sem á að vinna. Mér finnst það einnig skipta máli fyrir stjórnsýsluna í landinu, þ.e. að það komi einhver rödd annars staðar en akkúrat héðan úr Kvosinni. Þess vegna held ég að það skipti miklu máli að menn hugsi þann þátt þegar er verið að fara í skipulagsbreytingar, að þeir sem verði þá settir í útstöðvarnar hafi sjálfstæða rödd og það sé kallað eftir þeirra sjónarmiðum. Ef það verður ekki þá verður okkar góða Ísland einfaldlega að algjöru borgríki. Það er eitthvað sem er í andstöðu við stjórnarsáttmálann.