kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Já, ég er að vinna hér með rétt skjal. Ég tók það frammi áðan og þetta er það sem er á netinu. Það kristallast að hv. þingmanni finnst nóg að gert í bili. En ég vil bara fagna því samt að það hafi verið gerðar töluverðar breytingar á frumvarpinu sem er þá kannski breyting á vinnubrögðum frá því á síðasta þingi þar sem litlar breytingar voru gerðar á frumvörpum. Þetta er samt sem áður þannig að hér er verið að vinna í þá veru sem þessi afmarkaði þáttur, og ég veit að fleiri atvinnufyrirtæki, sem snúa að því að bílar séu keyrðir hingað og þangað hvort sem þeir eru stórir eða litlir, eru ekki sátt við þetta frumvarp.
Það er kerfi í gangi núna sem virkar ágætlega, með miklu minna flækjustigi, miklu skilvirkara og gegnsærra. Ég ætla ekki að spyrja þingmanninn spurningar en ég skil ekki alveg hvers vegna er verið að breyta þessu svona þegar þokkalegasta sátt ríkir um hitt kerfið sem er einfaldara og skýrara og hefur beinni afleiðingar strax þegar þú ert að kaupa þína olíu eða þitt bensín og svo er kílómetragjald á miklu minni hluta bílanna sem eru rafbílar. Ég veit að það getur hægt fyrir rafbílavæðingu bílaleiga að hafa kerfið eins og það er núna en við verðum að hlusta á atvinnulífið.