157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:49]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið og ég vil hvetja þingmanninn til að skella sér á bls. 20 í greinargerð með frumvarpinu þar sem farið er yfir hvers vegna við erum að þessu. Við erum að verja tekjur ríkissjóðs til þess að eiga fyrir viðhaldi vega. Sá tekjustofn ríkisins hefur rýrnað um 43% af góðum ástæðum, vel að merkja, það er af því að bílar eru orðnir sparneytnari og við erum farin að keyra meira á rafbílum. Það eru góðar fréttir en við verðum að standa undir rekstri vegakerfisins og þess vegna erum við að þessu, af því að hann spurði af hverju við erum að þessu.

Svo má auðvitað spyrja að því: Hvað er skilvirkt og hvað ekki? Auðvitað eru ákveðnir erfiðleikar í byrjun þegar verið er að setja á fót nýtt kerfi. Rafbílarnir eru komnir inn, það hefur gengið svona stórslysalaust fyrir sig. Núna eru 51.000 rafbílar í þessu kerfi og fyrir heimili sem er kannski að reka tvo rafbíla, þá mætti segja að þetta væri kannski bara aðeins einfaldara líf í staðinn fyrir að vera að vinna í tveimur kerfum. Ég myndi því segja að þetta gæti verið jafnvel skilvirkara.

Þetta er í þriðja skipti sem þetta mál er lagt fram og ég held að það hafi orðið mjög jákvæðar breytingar í meðferð málsins. Ég var mjög ánægð með að sjá að ráðuneytið hlustaði á nefndina sem fór mjög ítarlega í þetta og tók svo sannarlega tillit til umsagna sem bárust. Þess vegna varð ég hálfhvumsa við þegar þingmaðurinn sagði að ekkert hefði verið hlustað á umsagnaraðila, því að við gerðum það svo sannarlega og við röktum það í mjög ítarlegu nefndaráliti sem ég hvet þingmanninn líka til að lesa. En mig langaði kannski að spyrja þingmanninn: Hver er almenna afstaða hans til þeirrar hugmyndafræði sem hér er lýst, að þeir borgi sem nota? Er það hugmyndafræði sem honum líkar við eða sér hann eitthvert annað kerfi eða er hann tilbúinn til að láta þennan tekjustofn bara halda áfram að rýrna? Er það hans sýn á þetta mál?