157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Nú styttist í að ný samgönguáætlun líti dagsins ljós. Núverandi hæstv. innviðaráðherra hefur látið hafa það eftir sér að hann sé óbundinn fyrri samgönguáætlunum og með því vakið furðu margra sem beðið hafa eftir löngu tímabærum úrbótum í samgöngum í heimabyggð. Er það þá svo, frú forseti, að við hver stjórnarskipti eða jafnvel ráðherraskipti í þessu landi byrji menn upp á nýtt með autt blað fyrir framan sig? Er það svo? Hvers konar vinnubrögð eru það, frú forseti? Það verður athyglisvert að sjá hvað kemur upp úr hattinum því að þessi sami ráðherra gaf það út fljótlega eftir hann tók við að a.m.k. ein jarðgöng ættu að vera í framkvæmd á hverjum tíma en enginn bor er farinn af stað. Þeir bíða boranna fyrir norðan, fyrir austan, fyrir vestan og fyrir sunnan, en það er enginn bor farinn af stað.

Vegakerfið er svo illa farið víða um land að það stendur vart undir nafni. Ríkisstjórnin hefur lagt stórauknar álögur á sjávarútveg sem að mestu leggst á landsbyggðina. Boðaðar eru skattahækkanir á ferðaþjónustu og enginn rekstur í þessu landi er lengur óhultur fyrir skattstefnu þessarar vinstri stjórnar. Það verður athyglisvert að sjá þá miklu innspýtingu sem búast má við í samgöngumál þegar áætlun ráðherra birtist því að eins og lofað var þá eiga þessar auknu álögur að fara til uppbyggingar innviða sem næst þeim byggðum sem leggja skattfé til.

Nýr hæstv. innviðaráðherra þarf að koma úr felum og sýna á spilin og það strax.