157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Ég get ekki annað en verið ánægð með það að mitt efni er nákvæmlega það sama og hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar hér áðan, en góð vísa er náttúrlega aldrei of oft kveðin. Það eru niðurstöður Vöndu Sigurgeirsdóttur, lektors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, varðandi einelti. Þær sýna að tvöfalt fleiri börn í 6. bekk segjast nú upplifa einelti tvisvar til þrisvar í mánuði eða oftar en árið 2006. Einelti er samkvæmt þessu að aukast.

Tekin eru gögn úr tveimur rannsóknum, annars vegar á heilsu- og lífskjörum skólanema á Íslandi og hins vegar úr íslensku æskulýðsrannsókninni. Yfir 80.000 skólabörn í 6., 8. og 10. bekk tóku þátt í þessum tveimur rannsóknum frá 2006–2025. Samanlagt hlutfall eineltis í öllum bekkjunum var 5,4% árið 2006 en er komið upp í 8% í ár og í fyrra. Hér þarf að taka til hendinni. Einelti er ofbeldi. Það er átakanlegt að heyra barn lýsa hvernig því hefur verið strítt, það elt og hrellt, sparkað í það eða slegið, hæðst að því, það hrætt eða hunsað. Eftir því hvað einelti varir lengi og því grófara sem það er, því meiri er skaðsemin. Afleiðingar vara oft alla ævi; brotin sjálfsmynd og félagslegt óöryggi.

Einelti hefur alvarlegar afleiðingar bæði fyrir þolendur og gerendur. Minningin um að hafa verið lagður í einelti lifir og minningar um að hafa lagt einhvern í einelti eru ekki síður þrautseigar. Barn sem er þolandi eineltis á þá ósk heitasta að gerandinn hætti því. „Láttu mig vera“, segir barnið þegar ofbeldið byrjar, stundum á leið í eða úr skólunum, á göngunum í frímínútum, á netinu eða hvar sem þolandi og gerandi mætast. Birtingarmyndir eineltis eru margar og stundum er einelti svo vel falið að aðeins þolandi veit af því. Við verðum að gera betur og hefja fræðslu og þjálfun í samskiptum strax á leikskólastigi. Höfum í huga að barn sem stríðir (Forseti hringir.) og meiðir í leikskóla er líklegt til að halda því áfram í grunnskóla og til fullorðinsára ef ekki er unnið með vandann strax í byrjun.