157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

Störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í dag eru liðin tvö ár frá hryðjuverkum Hamas þar sem yfir 1.200 voru drepnir og 251 gísl tekinn. Það hefur verið skelfilegt að fylgjast með hörmungunum sem hafa fylgt í kjölfarið og yfirgengilegri neyð íbúa Gaza-svæðisins. Vonandi bera enn einar friðarviðræðurnar árangur.

Mig langar þó að beina talinu að tveimur hópum og ábyrgð hæstv. heilbrigðisráðherra og hæstv. barnamálaráðherra. Annars vegar langar mig að nefna ákall hópa vegna ákvörðunar heilbrigðisyfirvalda um að hætta niðurgreiðslu vegna vökvagjafa. Sjúklingahópar, sem samanstanda að mestu leyti af konum, m.a. sjúklingar með POTS-heilkenni, upplifa mikla angist vegna þessa og skilnings- og samráðsleysis stjórnvalda. Ég hef áður gert viðhorf heilbrigðiskerfisins í garð kvenna að umtalsefni, m.a. í tengslum við konur með endómetríósu. Mig langar að hvetja hæstv. ráðherra til að hlusta á neyðaróp þessara sjúklinga og gera ekki lítið úr raunum þeirra. Konur þurfa bara ekki alltaf að harka af sér og vera duglegri.

Hins vegar má ég til með að nefna mæður sem hafa stigið fram með neyðarákall vegna vímuefnavanda barna sinna. Ég hlustaði með tárin í augunum á þær í Bítinu á Bylgjunni og fannst ég vera komin 20 ár aftur í tímann. Þetta hefði getað verið fjölskyldan mín. Úrræðaleysið, skilningsleysið, vanmátturinn. Fjölskylduharmleikurinn. Af hverju sættum við okkur við það að börnin okkar þjáist og deyi án þess að gera okkar besta? Af hverju getur fólk fengið fjárhagslega aðstoð við efnaskipta- og liðskiptaaðgerðir erlendis, en fjölskyldur barna með vímuefnavanda bera allar byrðarnar sjálfar. Ef ég vissi ekki betur héldi ég að þessi sjúkdómur herjaði ekki á fína fólkið; ekki á ráðherra, ekki á þingmenn, ekki á dómara og ekki á embættismenn. En ég veit betur og ég skora á hæstv. ráðherra að koma börnunum okkar til bjargar áður en það verður of seint. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)