stjórnsýslulög.
Forseti. Ég veit ekki hvort ég nái að fara yfir allar þessar spurningar í svari mínu. Varðandi þörf á lagasetningunni, það var nú farið yfir það í greinargerð frumvarpsins. Þetta kemur svona náttúrlega upp að því leytinu til að stjórnsýslunefndir sem hafa fengist við túlkun á EES-reglum telja sig einfaldlega ekki hafa haft nægilega skýra heimild til þess að leita til dómstólsins. Það hefur augljóslega verið vilji í ákveðnum tilvikum til að leita til dómstólsins. Það er vissulega þannig að í Noregi og Liechtenstein hefur þessu verið beitt með breiðari hætti og ekki aðeins dómstólar sem telja sig hafa heimild til að leita til EFTA-dómstólsins heldur líka stjórnsýslunefndir. Hér hefur a.m.k. túlkunin ekki verið slík og þess vegna hefur þessi umræða sprottið upp og ósk víða í kerfinu. Það eru t.d. nefnd hér dæmi úr úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, nú síðast bara varðandi ágreining um virkjanaleyfi fyrir Hvammsvirkjun þar sem var verið að velta því upp hvort það ætti að leita ráðgefandi álits en niðurstaðan varð sú að það væri ekki heimilt. Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur líka tekið slíka afstöðu t.d. í samhengi við neytendalánin þar sem Íslandsbanki var aðili að máli. Þar hafði nefndin hug á því að leita ráðgefandi álits en það var ekki vilji fyrir því af hálfu t.d. Íslandsbanka og þá var ekki talin vera heimild til þess að leita til EFTA-dómstólsins.
Það eru skiptar skoðanir hef ég heyrt, þó að ég sé ekki lögfræðingur, um hvort það sé heimild eins og lögin eru í dag til að fara þessa leið, en þannig hefur það ekki verið í praxís. Þetta á þá að styrkja getu þessara nefnda til að leita þessara leiða. Ég get komið inn á flækjustigið í mínu seinna svari ef hv. þingmaður vill bæta einhverju fleiru við.