157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

89. mál
[14:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni framsögu fyrir nefndaráliti og eins og hv. þingmaður kom inn á taka allir þingmenn nefndarinnar undir þetta nefndarálit. Þegar við afgreiddum álitið út úr nefndinni á fyrra þingi þá var ég reyndar með fyrirvara sem ég hélt ekki til haga núna en vil samt minnast á hérna. Hann sneri að því að mér hefði þótt skynsamlegt að taka meira tillit til sjónarmiða sem komu fram í umsögn Karólínu Elísabetardóttur, sem varðar m.a. aðkomu og álit sveitarfélaga þegar ákvarðanir eru teknar í þessum efnum. En ég bara fagna því að þetta mál sé komið á þennan stað. Þetta er til bóta og auðvitað langþráður draumur um að við náum tökum á riðu hér heima fyrir, það er svona í augsýn, vonar maður, í kjölfar þeirrar þekkingar sem orðið hefur til og þeirra rannsókna sem undirbyggja hana.

Þetta mál rúllar vonandi hér hratt í gegnum 2. umræðu og síðan til 3. umræðu og verður að lögum. En ég vil bara nýta þetta tækifæri til að óska bændum landsins og landsmönnum öllum til hamingju með þennan áfanga sem hér er að nást í þessum langa og erfiða og í raun sorglega slag sem við höfum átt í. Síðustu fréttir eru auðvitað leiðinlegar úr Skagafirðinum í morgun.