157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

óverðtryggð fasteignalán á föstum vöxtum til langs tíma.

77. mál
[15:53]
Horfa

Flm. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvað kemur í veg fyrir að við náum að losna við verðtrygginguna úr íslensku samfélagi? Það veit hv. þingmaður mætavel. Það eru fjölmargir aðilar sem þar hafa verið að verki í fjármálakerfinu, í einstökum stjórnmálaflokkum. Ég man til að mynda ekki eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið viljugur undir tillögur okkar Framsóknarmanna sem við fórum þó með í gegnum ríkisstjórn. Eitt mál var komið mjög langt til afgreiðslu á einu þingi, hjá þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra til margra ára. Þannig að við gerðum ýmislegt og settum af stað vinnu við þetta.

Ég vil líka segja að þegar þessi vinna hófst voru bankarnir mismikið tilbúnir í þetta samtal. Það samtal hefur síðan þróast. Dr. Jón Helgi Egilsson sem fór í þetta samtal upplifði að það væri mjög mismunandi þekking á milli bankanna okkar á þessu sviði. Sumir bankar voru algerlega komnir þangað að velta fyrir sér hvernig þeir geti gert þetta, eins og ég nefndi með Arion banka og bankastjóra þess, Benedikt Gíslason. Reyndar var það meira á grundvelli gjaldmiðlaskiptasamninga en ekki vaxtasamninga, þar sem menn gætu verið að skiptast á skammtímabréfum yfir í langtímabréf sem bankarnir geta ekki náð í vegna þess að þeir eru smáir. Það geta lífeyrissjóðir og það getur ríkissjóður. Það er hægt að búa til slíkan markað. Hann þarf að vera virkur til að þetta gangi. Ég get hins vegar sagt að bankarnir hafa algjörlega skipt um skoðun. Þeir eru bara tilbúnir í þetta á þessum tímapunkti, að halda áfram í þessari umræðu, að reyna að þróa þetta. Þeir hafa líka bent á að það eru hlutir í regluverkinu sem við í þessum sal þyrftum að taka á og er verið að benda á í þessari fyrstu skýrslu í þessari vegferð. Það er það sem ég er með þessari þingsályktunartillögu að leggja til, að fjármálaráðherra verði falið að klára þessa vinnu til að athuga hvort þetta (Forseti hringir.) sé ekki raunverulegt sem ég og hv. þingmaður erum sammála um að er hægt.