framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð á þessu máli sem tengist einmitt breytingu á lögum um framhaldsskóla og varðar viðurkenningu námsbrautalýsinga og heimild framhaldsskóla til samstarfs. Það sem er kannski efst í mínum huga eftir lesturinn á þessu frumvarpi er einkum boðað samstarf milli framhaldsskóla og sjónarmiðin þar í kring, því að í frumvarpinu er sagt að framhaldsskólum verði, með leyfi forseta, „heimilt að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans“. Og samningar af því tagi sem hafa veruleg áhrif á rekstur skulu staðfestir af ráðherra að fenginni umsögn skólanefndar.
Í greinargerðinni segir jafnframt að markmið frumvarpsins sé að styðja við samstarf á milli framhaldsskóla, bæði faglegt og rekstrarlegt, og að lögfesting heimildarinnar sé liður í að setja skýrari umgjörð um samstarf á milli framhaldsskóla. Það er líka sérstaklega nefnt að samningar geti varðað rekstur stoð- eða skólaþjónustu og staðfesting ráðherra eigi að tryggja að slík verkefni séu nægilega skilgreind út frá fjárhagslegum og faglegum þáttum. Þá er verið að tala um stoðþjónustu, mannauðsráðgjöf, rekstrarmál, húsnæðismál og fleira. Það er sem sagt verið að opna á að skólar geri með sér slíka samninga. Það er mjög jákvætt því að ég veit að skólameistarar sjá tækifæri í því að vinna meira saman og eðli málsins samkvæmt hljóta skólastjórnendur að stýra þeirri vinnu.
Það sem vekur upp spurningar er að frumvarpið gengur út á að hver skóli hafi raunverulegt rekstrarlegt og stjórnunarlegt sjálfstæði og geti gert samninga um sameiginlega þjónustu. En það er ekki í samræmi við boðaða stofnun sex svæðisskrifstofa sem eiga samkvæmt kynningum ráðherra einmitt að taka yfir rekstur og stoðþjónustu framhaldsskóla, sem er í rauninni eins konar miðstýring. Ég velti því fyrir mér þegar verið er að taka stórar stjórnunarheimildir af skólastjórnendum en jafnframt hér verið að heimila þeim slíkt hið sama, hæstv. ráðherra, hvort þessi áform stangist ekki á.