framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Nei, þetta frumvarp er algerlega óháð því enda veit hv. þingmaður að þetta frumvarp kom hingað inn síðasta haust og það dagaði uppi í þinginu. Það komst ekki áfram. Það er búið að vera að vinna þetta frumvarp í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi verið í nefndinni að vinna þetta, þannig að ég skil ekki þetta sjónarmið vegna þess að það hefur ekkert með það að gera sem við erum að fara af stað með núna í sambandi við svæðisskrifstofurnar. Og númer eitt, tvö og þrjú, við ætlum ekki að taka allt af skólameisturum. Það stendur ekki til. Við ætlum í samtal við þá og reyna að fá upp hjá þeim hvað hentar best að fari í svæðisskrifstofurnar og hvað hentar best að sé hjá þeim. Það er það sem við erum að fara í samtal um. Ég tel að við og ráðuneytið séum þar á réttri leið vegna þess að þessari aðferð, að mér skilst, hefur yfirleitt ekki verið beitt heldur hefur yfirleitt verið beitt þeirri aðferð að segja: Hérna, við ætlum að hafa þetta svona og takið því eða verið á móti því. En við ætlum einmitt að fara aðra leið, í samtal.