framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar. Ég verð bara að segja og ítreka enn og aftur: Þetta frumvarp kom í fyrra. Þetta frumvarp dagaði uppi í þinginu. Þetta frumvarp er komið aftur inn núna og hefur ekkert með svæðisskrifstofurnar að gera, ekki neitt. Hv. þingmaður var í allsherjar- og menntamálanefnd. Hv. þingmaður kom að því þegar var verið að vinna þetta mál. Það eru breytingar komnar inn í þetta sem allsherjar- og menntamálanefnd gerði þannig ég skil ekki hvers vegna í ósköpunum verið er að tengja þetta við svæðisskrifstofurnar. Jú, það getur verið margt líkt þarna en þetta hefur ekkert með það að gera. Ég bara segi enn og aftur: Þetta hefur ekkert með svæðisskrifstofurnar að gera.
Svæðisskrifstofurnar eru allt annar hlutur sem við erum að fara í samtal við. Við erum ekki búin að festa niður nákvæmlega hvernig við ætlum að hafa þetta. Við erum ekki búin að segja: Við ætlum að taka þetta frá skólameisturum, ekki þetta. Við erum að fara í samtal við skólameistara vegna þess að ég hef heyrt í skólameisturum sem vilja senda ákveðna hluti frá sér. Við vitum að við erum í þeim aðstæðum núna að nemendur koma í skólann með lögfræðinga. Við vitum hvað er í gangi. Þó að það séu ekki mörg mál þá eru þessi mál mjög þung og erfið viðureignar. Ef svæðisskrifstofan væri með svona mál þá gætum við á sama tíma í ráðuneytinu verið að aðstoða skólann. En eins og staðan er í dag þá er þetta allt hjá ráðuneytinu og það er ekki gott. Það er einmitt oft verið að biðja um að við séum ekki hringinn í kringum borðið, ofan á því og undir því.