157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:39]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu og þátttöku í umræðum hér í þingsal. Það væri í sjálfu sér hægt að spyrja meira um hugmyndir ráðherra um svæðisskrifstofur og samrekstur eða samstarf framhaldsskólanna en ég ætla að láta það bíða betri tíma í bili. Mig langar hins vegar til að spyrja ráðherrann um þessi nýmæli í frumvarpinu hvað innritun varðar. Í frumvarpinu er verið að víkka heimildir um hvaða þætti mætti leggja til grundvallar við mat á einstaka nemendum. Ég hygg að það geti að mörgu leyti verið skynsamlegt, t.d. með nemendur sem hafa kannski skarað fram úr á öðrum sviðum til viðbótar við námsárangurinn. Ég staldra hins vegar aðeins við önnur atriði er varða ekki nemandann sjálfan heldur skólasamfélagið í heild sinni. Mig langar til að spyrja ráðherrann aðeins út í þetta vegna þess að í 13. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að ráðherra geti sett reglugerð, nánari reglur um efni þessara skilyrða og hvaða þættir þetta væru. Ég vil nota tækifærið til að spyrja ráðherrann: Hvað ætti að koma fram í þessari reglugerð? Hvaða aðrir þættir eru það eða sjónarmið sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla sem geta komið þarna til skoðunar? Og hvernig ætlar ráðherrann að gæta að því að nemandinn sjálfur verði ekki undir við eitthvert svona mat á hagsmunum skólasamfélagsins í heild sinni?