157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:41]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við erum eiginlega að byggja lagastoð undir það hvernig þetta á að fara fram. Það hefur verið bent á það margoft að þegar við horfum á það að einstaklingar sem eru kannski góðir í ákveðnum fögum en kannski ekki eins góðir í öðrum fögum, þá er kannski svolítið ósanngjarnt að segja við þá: Þú kemst ekki inn á þessa braut, bara vegna þess að þú ert á einum stað ekki í eins góðum málum og ætti að vera. Það hefur komið fram beiðni um það að við setjum einhverja lagastoð undir þetta þannig að við getum tryggt að það sé virkilega skoðað hvernig er hægt að gera þetta þannig að jafnræði sé á sama tíma. Skólarnir kalla eftir samstarfi og við ætlum ekki að fara að neyða neinn í samstarf. En það er vilji skólanna að við séum í samstarfi við þá og að við sjáum til þess að þeirra sjónarmið séu skoðuð. Það geri ég bara einlæglega, þess vegna er ég t.d. að fara af stað í þessa 27 skóla, búinn með þrjá, einmitt til að fá allar hugmyndirnar upp á borðið, hvernig þeir sjá fyrir sér að sé best að haga öllu svona samstarfi og ég held að við hljótum öll að vera sammála því. Ég er með það alveg á hreinu að ég er að þessu fyrir nemendurna númer eitt, tvö og þrjú. Það hlýtur að vera okkar sameiginlega markmið að finna bestu leiðir fyrir nemendur til að þeir geti stundað gæðanám í öllum skólum sem gefur þeim tækifæri inn í framtíðina.