framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni Ingibjörgu Isaksen fyrir andsvarið. Þetta er einhvern veginn hið furðulegasta mál, að þessar hugmyndir um svæðisskrifstofur og nýtt stjórnsýslustig komi hér frá ráðherra fyrir tæpum mánuði síðan þegar þetta frumvarp er búið að vera að velkjast um hérna í þinginu í tvö þing. Það þarf ekki geimvísindi til að sjá að þarna er bara alger skörun. Við erum með svæðisskrifstofur sem eiga að halda uppi ákveðnum þáttum; fjármálum, agamálum, námsráðgjöf, sálfræðiþjónustu, þar sem skólarnir of litlir til að geta haldið úti heilu stöðugildi. En síðan stendur í frumvarpinu að það séu einmitt þessir þættir sem skólarnir eigi síðan að sameinast um. Svo heyrum við hér frá hæstv. ráðherra að þetta tengist ekki með neinum hætti. Þetta er einhvern veginn — ég veit ekki hvað ég á að segja. Þú horfir á að tveir plús tveir eru fjórir og svo heyrir þú: Nei, það eru fimm.
Ég get í raun ekki svarað hv. þingmanni öðruvísi en að önnur hugmyndin er einhvern veginn algerlega óþörf. Ég myndi bara hvetja til að þessar svæðisskrifstofur yrðu hugsaðir algjörlega upp á nýtt og það kæmi fram hér í pontu frá hæstv. ráðherra að þetta sé eitthvað skrýtið, því að ég hef aldrei séð svona hér. Nú er ég ekki langreyndur þingmaður, hef ekki verið lengi á þingi, en það er með ólíkindum hvernig þetta púsl framhaldsskólans er komið hingað. Það vantar endaröðina og svo er hægt að púsla svæðisskrifstofurnar í framhaldinu. En að taka út það púsl sem er hér í þessu frumvarpi sem gengur út á samstarf framhaldsskóla — hvers vegna var verið að breyta þremur greinum og tiltaka samstarf framhaldsskólanna um ákveðna þætti í skólastarfi ef síðan svæðisskrifstofurnar og einhverjar hugmyndir um þær eiga að sjá um það?
Ég er búinn að fá alveg gríðarlegan tíma hér.
(Forseti (EÁs): Nei, ég er með þetta hérna. Þetta er að koma.)
Ég bíð eftir næsta andsvari.
(Forseti (EÁs): Það er einhver bilun í klukkunni. Það er verið að fara yfir tæknimálin.)