framhaldsskólar.
Frú forseti. Þetta er í rauninni alveg með ólíkindum. Maður verður eiginlega ringlaðari eftir því sem við tölum meira um þetta mál. Það er líka annað sem ég hjó aðeins eftir; við erum með þessa framhaldsskóla og svo er ný stofnun sem heitir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem á einmitt að sjá um þjónustu við framhaldsskólana. Það kemur fram hér í texta á vefsíðu Stjórnarráðsins, með leyfi forseta:
„Með breytingunum verða boðleiðir styttri og stuðningur markvissari. Í stað þess að leita til ráðuneytisins hafa skólar beint samtal við sína svæðisskrifstofu sem þekkir vel til aðstæðna hvers skóla. Nýja stjórnsýslustigið tryggir jafnframt að nú er það ekki lengur sami aðili sem veitir framhaldsskólum þjónustu og hefur eftirlit með henni.“
Mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins út í þetta. Ég myndi halda að þarna væri eitt lag í viðbót ofan á þetta. Við erum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem á að sjá um þessa þjónustu, skólar eiga að geta leitað beint þangað, ekki til ráðuneytisins, og það á að vera sá aðili sem á að fylgjast með og vera með eftirlit með þessum stofnunum. Svo það er verið að bæta þessu ofan á. Nú vantar líka einmitt frumvarp um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, sem við bjuggumst reyndar við á haustþinginu í fyrra og líka núna á vorþinginu og núna á þessu haustþingi, og það er búið að bíða svolítið eftir betri skilgreiningu á miðstöðinni til þess að sé hægt að efla hana enn frekar. Telur hv. þingmaður að verið sé að bæta við lagi þarna með þessum svæðisskrifstofum? Eins líka hvort það sé hreinlega verið að veikja Miðstöð menntunar og skólaþjónustu með þessum áformum.