157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:06]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir gott andsvar. Það ætti ekki að skipta máli hvort sérfræðingarnir eru í Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, hvort þeir eru í 10 km, 50, 100, 200 eða 300 km fjarlægð ef samskiptin eru í gegnum rafræna sendiboða, einhvers konar tölvupóst eða Teams eða eitthvað slíkt. Það virðist alla vega vera þannig að þessar svæðisskrifstofur eigi að þjóna þannig, því að ekki er fólk að ferðast fleiri hundruð kílómetra á hverjum degi. Þannig að já, með svæðisskrifstofunum, ef þær koma, myndast annað lag og það tekur í raun mannauð mögulega frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og líka þá bara frá skólunum því að þarna verða sérfræðistörf hingað og þangað.

Það hefur komið fram í máli hæstv. ráðherra að það hafi verið kallað eftir þessu stjórnsýslustigi — kallað eftir því. En samt sem áður skrifa allir skólameistarar, 100%, undir það að enginn hafi kallað eftir þessu, þetta sé aðför að framhaldsskólunum. Þarna fari ekki saman hljóð og mynd. Þannig að þetta mál er allt hið dularfyllsta og virðist einhvern veginn vera gert í fljótfærni, illa reifað, illa útskýrt. Það veldur því að það skapast töluverð upplýsingaóreiða vegna þess að umræðan um þessar svæðisskrifstofur — það getur vel verið að einhvern tímann hafi ég haft rangt fyrir mér vegna þess að við vitum ekki nákvæmlega út á hvað þær eiga að ganga því að upplýsingarnar hafa verið svo takmarkaðar. Það er búið að setja einhvern ramma sem á síðan að koma öllum í. Það er búið að tala um þessar svæðisskrifstofur. Það verður ekkert bakkað frá því. Svo á að tala við skólameistara um land allt sem voru ekki að biðja um þetta.

Þetta er alla vega hið sérstakasta mál. Það er vonandi að ráðherra komi í andsvar við mig líka. Ég myndi óska þess.