157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:09]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hrósið, þessi fallegu orð í minn garð hér áðan. Ég er samt sem áður aðeins hugsi yfir hvað við erum mikið að tala um þessa hugmynd um svæðisskrifstofur um leið og við erum að tala hérna um breytingu á lögum um framhaldsskóla. Eins og ég skil þessa hugmynd um svæðisskrifstofur er það eitthvað á algjöru frumstigi og er í rauninni bara að mótast í samtölum ráðuneytisins við skólana og við vitum ekkert hver útkoman á eftir að verða. Ég myndi því leggja til að við myndum ekki alveg missa okkur í það.

Það sem ég hef mestar áhyggjur af, og átti gott samtal við hv. þingmann um það um daginn, er að þeir fagaðilar sem eru í þessum skólum haldi áfram að vera í skólunum. Það vill svo illa til, því miður, að einu lögbundnu fagaðilarnir í framhaldsskólum eru námsráðgjafar, en það eru ekki sálfræðingar. Það hefur verið mitt baráttumál og ég hef skrifað um það greinar að ég vil fá sálfræðinga í alla framhaldsskóla en við erum bara ekki komin þangað, því miður. Auðvitað er þetta alltaf spurning um fjármagn. Það eru einstaka framhaldsskólar sem eru stöndugir sem hafa ráðið til sín sálfræðing. Ég veit til þess að það er sálfræðingur í Verzlunarskóla Íslands, ég veit til þess að á Laugum er keyptur sálfræðingur á tveggja vikna fresti en mjög margir skólar fá aldrei sálfræðing inn til sín. Þar á að vera námsráðgjafi, síðan kemur hjúkrunarfræðingur af og til og svo getur verið mögulega félagsráðgjafi. Þetta er bara alls konar en hvað sem þetta er þá er þetta allt gott. Við viljum samt fá meira fagfólk inn í framhaldsskólana og það verður auðvitað að hafa aðsetur í skólunum og ég held að enginn hafi verið að tala um neitt annað hingað til. Ég hef alla vega ekki heyrt það hjá hæstv. ráðherra eða neinum að taka eigi stoðþjónustu í skólunum, hvernig svo sem hún er, út úr þeim og setja á einhverjar svæðisskrifstofur. Ég myndi alla vega mótmæla því. Ég sé fyrir mér — afsakið, ég ætla bara að fá að halda áfram á eftir. (Gripið fram í: Eru einhverjar spurningar?)