framhaldsskólar.
Frú forseti. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen, mig langar kannski að fá að koma inn á þetta með forganginn í ræðu og klára frekar núna það sem við vorum að tala um áðan. Ég vil spyrja hv. þingmann hvað honum finnst um það að framhaldsskólanemar í framhaldsskólum landsins sitja sannarlega ekki við sama borð eins og staðan er núna. Ef við hugsum okkur bara Verzlunarskóla Íslands og þessa stöndugu skóla sem eru með fjármagn, kaupandi þessa góðu þjónustu fyrir nemendurna á meðan einhverjir aðrir skólar sem hafa ekki úr miklu að moða hafa mögulega ekki neitt nema námsráðgjafana vegna þess að það er í lögum. Staðan núna er því ekkert endilega mjög góð og hvort sem hugsunin hafi einhvern tíma verið að setja stoðkerfi inn í einhverjar svæðisskrifstofur, sem ég veit ekki, þá gæti það samt jafnvel verið einhver plús einhvers staðar þar sem ekki er neitt núna fyrir. En þetta veit ég að er allt í skoðun og bara á algjöru frumstigi í skipulagsmálunum hjá ráðuneytinu, þannig að ég myndi ekki endilega vera að eyða svo miklu púðri í það hér því að við höfum ekki hugmynd um hvernig útkoman á eftir að verða.
Um helmingurinn af krökkunum sirkabát eru börn og hinn helmingurinn er fullorðinn þannig að þetta er pínulítið vandasamt. Við erum með stofnun sem er með börn og fullorðna hlið við hlið nánast og við erum að tala um bara fyrstu árs nema og þá sem eru að útskrifast. Þarna er bara heilt lagastykki á milli, gjörólíkt, þannig að þetta er vandmeðfarið. Við viljum hugsa um börnin okkar samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna almennilega en síðan viljum við auðvitað getað boðið þessum fullorðnu nemendum líka góða þjónustu. Það gæti því vel verið að út úr þessu nýja kerfi, þegar það er komið, komi eitthvað gott og ég vil bara gefa því séns. Síðan eru þarna nokkur atriði sem við ræddum ítarlega á síðasta þingi sem ég myndi gjarnan vilja koma betur inn á á eftir í ræðu.