157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fínt andsvar. Hv. þingmaður nefnir skóla eins og Verzlunarskóla Íslands, að hann sé stöndugur, hafi meira fjármagn. Verzlunarskólinn er að sjálfsögðu einkarekinn, þannig að ættum við þá að einkareka alla skólana til að fá meira fjármagn í þá? Það er spurning sem ég varpa hér fram, ég er ekki að segja að það eigi að gera það en það væri alla vega leið til að auka fjármagn í skólunum. Mér finnst reyndar ekki rétt orðfæri að nefna þennan skóla og tala um að hann sé stöndugur. Í síðustu viku, kjördæmaviku, heimsóttum við tvo skóla, Fjölbrautaskólann við Ármúla og Borgarholtsskóla. Samkvæmt síðustu mælingum í þeim skólum og öllum framhaldsskólum er virðisauki nemenda þar miklu meiri en í Verzlunarskólanum þannig að það er þvert á það sem hv. þm. Kolbrún Áslaug Baldursdóttir er að tala um með einhvern stöndugleika. Hann getur mögulega komið af því að krakkar eru að greiða skólagjöld í Verzlunarskólann, sem er rétt, og það skapar náttúrlega auknar tekjur fyrir skólann. Það virðist vera í þessum skólum sem ég nefndi áðan og fleiri, ég bara veit það, þekki tölurnar í því, að hinir ýmsu skólar eins og þessir tveir sem ég heimsótti, Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Borgarholtsskóli, að virðisauki nemendanna í náminu þar er miklu meiri en í mörgum öðrum skólum. Það geta alveg verið ástæður fyrir því en það er alla vega þannig. Við skulum ekkert tala þannig um skólana sem eru mögulega ekki jafn vinsælir og aðrir, að þeir séu að einhverju leyti verri. Ég er alveg viss um það að þeir eru það ekki. Þeir eru bara öðruvísi og við viljum fjölbreytileika, sérhæfingu og sérstöðu. Þetta frumvarp er að fletja þá út og gera þá miklu líkari hverjum öðrum í stað þess að sérhæfingin og sérstaðan haldi sér.