157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:18]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Ég vil aftur þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu og sömuleiðis þingmönnum hér í þingsal fyrir umræður sem hafa verið um margt ágætar. Örstutt varðandi áform ráðherra um svæðisskrifstofur en þá verð ég nú að taka undir með ágætum kollegum mínum í minni hlutanum. Það kemur manni auðvitað svolítið spánskt fyrir sjónir hvernig þetta frumvarp sem var mælt fyrir í dag og lagt fyrir þingið 4. október síðastliðinn tónar við hugmyndir ráðherra um þessar svæðisskrifstofur. Ég skil 2. gr. frumvarpsins á þá leið að þarna sé verið að mæla fyrir um sérstaka heimild framhaldsskólanna sjálfra til að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta. Það er reginmunur á þeirri hugmynd sem hér er til umfjöllunar annars vegar og svo áformum hæstv. ráðherra hins vegar vegna þess að hérna liggur forræðið hjá framhaldsskólunum sjálfum. Það er verið að mæla fyrir því að framhaldsskólunum sé heimilt að hafa með sér slíkt samstarf en áform ráðherra um þessar margumtöluðu svæðisskrifstofur eru í raun og veru á þá leið að framhaldsskólunum sé skylt að afsala sér valdi til einhvers konar millilags í stjórnsýslunni, nýs stjórnsýslustigs eins og það var orðað í tilkynningu ráðherrans. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Nýtt stjórnsýslustig verður sett á laggirnar þar sem stjórnsýsla og þjónusta færist yfir á 4–6 svæðisskrifstofur. Þær verða staðsettar í nærumhverfi skólanna.“

Þarna er bara reginmunur á allri nálgun. Annars vegar er þetta frumvarp sem ráðherrann mælti fyrir hér í dag, um að framhaldsskólum sé heimilt að hafa með sér samstarf, sem er auðvitað bara mjög skynsamlegt og getur falið í sér hagræðingu og bætta þjónustu fyrir nemendurna sjálfa, á forræði framhaldsskólanna sem óska þess að taka þátt í slíku samstarfi. Það er hugmynd A. Hugmynd B eru áform hæstv. ráðherra um eitthvað allt annað. Þetta skýtur auðvitað skökku við. Svo það sé sagt er ég mun hrifnari af þeim áformum sem birtast í frumvarpinu hvað þetta samstarf varðar, þannig að ég hrósi nú því sem vel er gert.

Svo eru önnur atriði í frumvarpinu sem ég hlakka til að skoða nánar í störfum hv. allsherjar- og menntamálanefndar. Þarna eru atriði er varða vinnustaðanám og starfsþjálfun sem eru mjög mikilvæg og ég tel að verði í raun og veru alltaf mikilvægari og mikilvægari í okkar samfélagi. Ég ásamt öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík heimsótti einmitt tvo skóla og ég fylltist aðdáun á því starfi sem var unnið þar, annars vegar fjölbreytt nám og hins vegar fjölbreyttur nemendahópur og hvernig starfsfólkið tekur utan um hann. Ég hafði mikla ánægju af því að ræða hvort heldur sem var við nemendur, stjórnendur, kennara eða annað starfsfólk þessara skóla af því að á endanum er þetta nálægðin. Nemendurnir eiga í samskiptum við sína samnemendur, kennara og annað starfsfólk. Nálægðin skiptir öllu, sérstaklega á þessum viðkvæmu árum sem framhaldsskólaárin eru. Þannig að það er margt í þessu frumvarpi sem ég þarf að kynna mér nánar og hlakka til að gera.

Það eru önnur atriði hér sem ég held að þurfi að staldra við. Mörg þeirra hygg ég og veit að hafa komið til umræðu þegar málið var flutt á síðasta þingi. Svo það sé sagt er málið endurflutt en hefur samt tekið breytingum. Maður sér að sums staðar í frumvarpinu hefur verið tekið tillit til athugasemda umsagnaraðila, hvort heldur sem er umboðsmanns barna, Samtaka atvinnulífsins og annað slíkt. Maður sér þess merki að frumvarpinu hefur verið breytt þó að það sé sagt endurflutt. Það er auðvitað til bóta þótt ég hefði talið betra að gengið væri lengra hvað þetta varðar.

Þá ætla ég að víkja að þessum tveimur síðari efnisatriðum í máli mínu. Það er annars vegar þetta varðandi innritunina sjálfa sem er auðvitað gríðarlega mikilvægur þáttur sem snertir tilvonandi nemendur framhaldsskólanna. Þarna er verið að opna á þessa heimild, ef ég skil hana rétt, og þá birtist þetta vandamál sem verður auðvitað ekki leyst bara með þessu frumvarpi. Það er stærra en svo. Innritun sem byggist á hæfni sem er ekki metin með samræmdum hætti verður sýnilega háð ýmsum annmörkum. Þar komum við að þessu klassíska, að það er ekki til neitt samræmt námsmat og því erfitt að meta einstaka nemendur þegar kemur að innritun. Það er auðvitað mjög aðkallandi að bætt verði úr þessu hið fyrsta.

Það sem ég staldra við í þessu frumvarpi sérstaklega eru þessi sjónarmið sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla, þar með talið að miðað sé að því að auka fjölbreytni í nemendahópnum, eins og það er orðað í frumvarpinu. Þarna er verið að opna á að önnur atriði er varða nemandann sjálfan, námsárangur hans, séu lögð til grundvallar við innritun í skóla. Þetta er í eðli sínu auðvitað ósanngjarnt gagnvart þeim nemanda sem kemst ekki inn í sinn draumaframhaldsskóla sökum þess að ráðherra, eftir atvikum í reglugerð, eða þá einhverjir aðrir aðilar hafa tekið þá ákvörðun að rétt sé að líta til annarra sjónarmiða sem tengjast skólasamfélaginu, einhverra svona heildarhagsmuna. Þetta er í eðli sínu og verður óhjákvæmilega ósanngjarnt gagnvart þeim nemendum sem komast ekki inn í sinn draumaframhaldsskóla. Það þarf að fara varlega og vega og meta sjónarmið sem skipta máli.

Ég hlakka bara til umræðna í hv. allsherjar- og menntamálanefnd um þetta atriði og ég staldra aðeins við það sem ég nefndi í andsvari mínu við ráðherrann hvað varðar reglugerðarheimildina sjálfa. Þarna er bara verið að tala um atriði er varða aukna fjölbreytni í nemendahópnum sjálfum en þau geta bersýnilega verið fleiri. Þarna held ég að rétt væri að framselja ráðherranum kannski ekki of miklar valdheimildir heldur að Alþingi rýni aðeins betur í þessi atriði.

Svo er það hitt sem ég nefndi líka í andsvari mínu við ráðherra og það er 14. gr. frumvarpsins, um að nemendum beri að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í öllu því sem skólann varðar, fara eftir skólareglum, þar á meðal í starfi á vegum nemendafélags framhaldsskóla. Vissulega er það svo að í núgildandi lögum um framhaldsskóla eru nemendafélögin náttúrlega hluti af framhaldsskólunum að einhverju leyti og á ábyrgð skólans. Hins vegar er þátttökuréttur nemendanna sjálfstæður og ég óttast að þarna sé kannski verið að ganga helst til langt og í raun og veru inn á þetta frelsi, félagafrelsi, nemendanna til að skipuleggja starf sitt og ákveða í hverju það felst. Það er nemendanna að velja hvort þeir taki þátt í því hreinlega. Því velti ég fyrir mér, eins og kom reyndar fram í umsögn umboðsmanns barna þegar málið var til umfjöllunar á síðasta þingi, hvort og með hvaða hætti samráð hafi verið haft við nemendur við undirbúning frumvarpsins sjálfs. Það kom svo sem fram í svari ráðherra að úr þessu hefði að einhverju leyti verið bætt í meðförum þingsins og ég sá að í það minnsta tvö nemendafélög framhaldsskóla skiluðu inn umsögn, sem er auðvitað mjög ánægjulegt að sjá, en eftir stendur hvort og að hve miklu leyti hefur verið tekið tillit til sjónarmiða þeirra.

Ég held að ég láti þetta nægja. Kannski eitt í lokin sem er annað flókið atriði sem þarf að ræða í nefndinni sjálfri og það er varðandi fræðsluskylduna. Nemendur undir 18 ára aldri eiga rétt á því að sækja framhaldsskólanám og hvernig horfir það við ef til brottvísunar þeirra kæmi? Til að allrar sanngirni sé gætt þá er í síðustu málsgrein 14. gr. fjallað um þetta. Þar segir, með leyfi forseta:

„Ef tekin er ákvörðun um brottvísun nemanda sem er yngri en 18 ára skal framhaldsskóli, eftir atvikum með aðkomu ráðuneytisins eða Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, leiðbeina nemanda, og foreldrum eða forsjáraðilum, um hvernig nemandinn geti haldið áfram námi í framhaldsskóla.“

Ég held að það sé mjög mikilvægt að nemandinn sé gripinn með einhverjum hætti og áframhaldandi skólavist hans með einhverjum hætti tryggð. Ég velti því líka fyrir mér hvort þetta ákvæði sem slíkt grípi akkúrat það atriði.

Ég hlakka til að ræða þetta mál áfram í nefndinni og hlusta á sjónarmið þeirra fagaðila og nemenda sem vilja láta málið sig varða.