framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Hann fór yfir mörg góð atriði hérna. Það er ýmislegt í þessu frumvarpi sem er líka mjög jákvætt og til bóta en eðlilega er um að ræða hér ýmis atriði sem kannski eru óljós og stangast jafnvel á, eins og t.d. markmið frumvarpsins varðandi samvinnu framhaldsskóla til móts við áform ráðherra um svæðisskrifstofur.
Hæstv. ráðherra kom inn á það áðan í andsvari að þetta hefði ekkert með svæðisskrifstofur að gera. En þegar við hugsum um samvinnu, hvaða samvinnu er í rauninni verið að ræða hérna, því að frumvarpið talar bæði um faglega samvinnu og rekstrarlega samvinnu, þá er í rauninni hvort tveggja einfaldlega bara mjög nátengt. Ef við horfum á rekstrarlega samvinnu, ef við horfum á ákvörðun um námsframboð eða nýja námsbraut t.d. hefur það beinar fjárhagslegar afleiðingar. Skipulag kennslu og starfsþróun kennara hefur rekstrarlegt vægi. Stoðþjónusta eins og námsráðgjöf og sálfræðiþjónusta er bæði fagleg og fjárhagsleg ákvörðun. Þess vegna er í rauninni ekki hægt að tala um faglega samvinnu án þess einmitt að fjalla um rekstur og fjármagn og mannaforráð. Þannig að maður veltir því aðeins fyrir sér ef áform ráðherra ganga eftir varðandi svæðisskrifstofurnar hvort fjárhagslegu og mannauðstengdu verkefnin verði tekin frá skólameisturum og flutt til svæðisskrifstofa miðað við tilkynningu sem kemur fram hjá Stjórnarráðinu.
Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann geti svarað mér, það er ekkert endilega víst en maður velti því fyrir sér til hvers er verið að setja sérstaka lagaheimild um rekstrarsamvinnu milli framhaldsskóla ef áformin eru síðan að taka ábyrgð á rekstri frá skólameisturum.