framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Því miður á ég ekki einfalt svar. Í raun og veru er hér lagt fyrir þingið, eins og kom fram í fyrri ræðu minni, frumvarp sem gengur í bága við áform ráðherrans um þessar svæðisskrifstofur. Í sjálfu sér, og aftur auðvitað með þeim fyrirvara að maður á eftir að taka þátt í umræðum í nefndinni sjálfri, átta ég mig hreinlega ekki á því hverju svæðisskrifstofurnar geta mögulega bætt við. Af hverju er nauðsynlegt að færa, eins og segir í tilkynningu ráðherrans, þjónustuna frá skólunum yfir til svæðisskrifstofunnar, sem verður þá miðstýrt, nýtt stjórnsýslustig, þegar þessi hugmynd um að veita framhaldsskólunum einmitt auknar heimildir til að eiga með sér slíkt samstarf er lykilatriði? Þegar við fórum í heimsókn í tvo framhaldsskóla — og það hefur komið fram í umræðum hér í þingsal að eftirspurnin eftir þessum svæðisskrifstofum er ekki frá skólunum komin. Ég á í raun og veru eftir að átta mig á því hvaðan ákallið kemur og við hvern samtalið og samráðið hefur verið, vegna þess að fólkið á gólfinu, fólkið sem er að veita þjónustuna og fólkið sem er að þiggja hana er augsýnilega ekki að biðja um þetta.