framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þessi hugmynd kom einmitt upp í hagræðingartillögum sem voru sendar til ríkisstjórnarinnar og eru eitt af því sem hefur verið varpað fram. Ég veit að skólameistarar funduðu vegna þessara hugmynda og voru að vara við þessari vegferð. Maður veltir fyrir sér hverju svæðisskrifstofur muni bæta við því ef það er rétt sem hæstv. ráðherra segir hér, að það eigi ekki að taka nein verkefni af framhaldsskólanum heldur eigi þetta að vera stuðningur, þá veltir maður fyrir sér: Til hvers er þá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem á einmitt að veita stuðning við þessa þjónustu til skólanna? Í 40. gr. laga um opinber fjármál eru ríkisaðilum veittar heimildir til að gera ýmsa samninga um framkvæmdir, rekstur og afmörkuð verkefni. Nú er ég að segja að það sé ekkert endilega rangt að heimila skólum að eiga samstarf og það sé mjög jákvætt að þeir eigi samstarf en það felst þó heimild í 40. gr. laga um opinber fjármál varðandi þetta samstarf. Maður veltir fyrir sér: Dugir sú heimild ekki til? Þarf að taka þetta fram í sérstöku frumvarpi?