157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:37]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og tel að þarna ætti hæstv. ráðherra kannski frekar að vera til svara. Vissulega er það svo að aukið samstarf milli opinberra stofnana er af hinu góða og að þær hafi sjálfar forræði á því að nýta sér það hagræði sem getur hlotist af því. Til að svara spurningunni líka þá er, ef ég man rétt, í frumvarpinu talað um dæmi um samstarfsverkefni en þarna er verið að mæla fyrir um annaðhvort aukna heimild eða bara einfaldlega áminningu um að möguleikinn sé til staðar.