framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir hans ræðu. Ég hjó þar eftir heimild til samráðs sem er í þessu frumvarpi og hvernig það tengist síðan svæðisskrifstofufrumvarpinu. Ég verð að segja alveg eins og er að það var engin ákvörðuð tenging á milli þessa frumvarps og svæðisskrifstofufrumvarpsins frá mér vegna þess að þetta frumvarp kom áður en ég kom í ráðherrastólinn. En svæðisskrifstofufrumvarpið er komið frá mér þannig að það er alveg á hreinu. Heimild til samráðs hlýtur alltaf að vera af hinu góða og samráð hlýtur alltaf að vera það sem við erum að biðja um. Ég veit ekki hvort einhver hérna inni vill ekki samráð heldur eingöngu hnefann í borðið og segja hvað á að gera. Ég er ekki þar.
Ég vil bara þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og t.d. í sambandi við hugmyndina um innritun í skóla, að það sé ekki eingöngu horft til einkunna, þá hljótum við að geta horft á fleiri þætti, og hvort hann sé sammála mér. Við hljótum að geta horft á fleiri þætti hjá nemendum okkar heldur en bara þrjár greinar; stærðfræði, náttúrufræði og lestur. Ég meina við hljótum að geta sagt að einhver sem er með góða hæfileika, kannski ekki í einni af þessum greinum, en kannski með tvenna eða þrenna góða hæfileika í einhverju öðru, að við eigum að fella hann fyrir það, að hann fái ekki þá að komast í einhvern skóla sem hann langar í. Við erum í þeirri frábærri stöðu að það er innritað 99% í alla framhaldsskólana sem er algerlega frábært. Þar af leiðandi segi ég: Við erum í góðum málum en við getum líka gert góð mál mun betri.