framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta innlegg sitt. Ég tel að þarna séu atriði sem klárlega þurfi meiri skoðun. Er þar af mörgu að taka, annars vegar efnisatriði frumvarpsins sjálfs og hins vegar hvernig það tónar við áform ráðherra eða ráðuneytisins um þessar svæðisskrifstofur. Hér er náttúrlega til umfjöllunar frumvarpið sjálft og þegar maður les þetta ákvæði þá staldra ég einfaldlega við það hverju svæðisskrifstofurnar eiga að bæta við, nema þá bara auka miðstýringu, þykkja eitthvað millilag sem verður á endanum ekki nemendunum eða starfsfólki þessara skóla til bóta.