framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar við andsvari mínu. Eins og kemur fram í greinargerðinni þá er það starfshópurinn sem er að fara yfir þessi EKKO-mál sem í rauninni segir að það séu ákveðnar glufur í löggjöfinni sem þurfi að taka á og þetta er ákveðin tiltekt til að bregðast við því. Þessi skýrsla kom, skilst mér, út 2024, þannig að það er verið að bregðast við niðurstöðum þessa starfshóps, þannig alla vega les ég það. Mig langar að spyrja um þessa heimild skólameistara til að horfa til fleiri þátta, heimild skólanna. Núna horfa skólar til fleiri þátta. Mig langar að spyrja þingmanninn að því hvort hann treysti fagfólkinu á gólfinu til að fara vel með þessa heimild. Skólarnir eru fjölbreyttir, það eru t.d. starfsbrautir innan skóla fyrir fólk með fötlun þar sem er eðlilegt að horft sé til fleiri þátta heldur en bara námsárangurs ef skólinn er orðinn fullur af afburðanemendum einkunnarlega séð. Við erum líka með afreksbrautir í íþróttum. Er eðlilegt að horfa til annarra þátta þegar tekið er inn á þær brautir? Og síðast en ekki síst: Er ekki mikilvægt að skólarnir hafi þessa heimild? Ef þú ert kannski með 50 laus pláss og 100 nemendur með sömu meðaleinkunn, er þá ekki mikilvægt að það sé skýr heimild um það til hvaða annarra þátta á að horfa ef allir eru jafnir til að byrja með?