framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Þarna er kannski í grunninn um tvo þætti að ræða ef maður kjarnar þetta. Annars vegar til hvaða sjónarmiða má líta og svo hins vegar hver á að ákveða hver sjónarmiðin eru. Í grunninn þá get ég tekið undir það sem kom fram í ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens að það er skólanna að setja kröfurnar, ég treysti þeim fyllilega til að gera það. Það sem ég óttast er að valdið sé einmitt tekið þaðan, flutt til ráðherra sem gæti þá með reglugerð bundið hendur skólanna hvað þetta varðar. Hvað seinna atriðið varðar þá eru sjónarmiðin um innritun nemenda að sjálfsögðu mjög flókin og ég tel að þar megi gera betur (Forseti hringir.) og líta til margra þátta er varða einstaklinginn sjálfan en geld varhuga við að hagsmunum hans sé fórnað í þágu heildarinnar.