157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:52]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér erum við komin að ræða enn á ný frumvarp hæstv. menntamálaráðherra um framhaldsskóla og vissar breytingar sem þar er verið að gera. Hluti af því lýtur að margvíslegri viðurkenningu á námsbrautalýsingum og öðru eins og þeir þættir hafa ekkert endilega fengið mikla umræðu. Það er aðallega til annarra þátta sem menn hafa verið að horfa, m.a. ákveðna hugmyndafræðilegrar þátta sem ég hef gert athugasemdir við og lýst efasemdum um sem hafa verið ræddir hérna í þingsal í dag, rétt eins og á síðasta þingi, og við höfum rætt í þingsal við önnur tilefni en í þessari umræðu, m.a. í fyrirspurnum til hæstv. ráðherra og öðru eins. Ég mun aðeins fjalla um þessa þætti hérna og leiðrétta ákveðna hluti sem hafa komið fram hér í dag í sambandi við þá.

Hitt er, sem er alveg vert að nefna í þessu sambandi, að það er verið að fjalla um ákveðna möguleika framhaldsskólanna í stjórnsýslunni þar sem þeir eiga að geta unnið saman í tengslum við ákveðin sameiginleg svið sem þeir geta rekið saman, að þeir fái einhverjar heimildir til þess. Maður getur að vissu leyti tekið undir með hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni að það er ekkert vitlaust að sú heimild sé veitt, en síðan er hitt stærri spurning. Sú vegferð hefur nú verið kynnt að sameina stjórnsýslustig framhaldsskólanna í ákveðnar svæðisskrifstofur vítt og breitt um landið og eins og framhaldsskólarnir hafa lýst er þar að einhverju leyti verið að taka inn verkefni úr skólunum inn í miðstýrðari apparöt. Við eigum eftir að sjá nákvæmlega hver útfærslan þar verður og hvort hún sé til bóta og hvernig samfélag framhaldsskóla sér það allt saman.

Ég ætla ekki að setja á of miklar ræður um þetta mál. En ég ætla hins vegar að benda á samhengi þeirra breytinga sem hér er verið að fara í gegn með. Það er talað um að þessar breytingar í sambandi við það að taka aðra þætti en t.d. einkunnir inn í matið þegar innritun í framhaldsskóla er gerð, snúist bara um þetta álit umboðsmanns, það verði að veita þessa heimild og þetta sé í raun og veru tæknilegt atriði. Ég geri ákveðnar athugasemdir við þessa framsetningu. Auðvitað er þetta ekki bara tæknilegt atriði heldur er þetta öðrum þræði hugmyndafræðilegt. Maður heyrir raddir innan úr hinu svonefnda skólasamfélagi, eða alla vega hluta opinberra starfsmanna í einhverjum skilningi sem vinnur á sviði skólamála, að þar er tónn um að það sé öðrum þræði eitthvað vafasamt við þá hugsun að ákveðnir framhaldsskólar séu með framúrskarandi aðstæður hjá sér í ákveðnum greinum, þ.e. að það sé munur á milli framhaldsskóla. Það er til fólk sem finnst ekki endilega að þetta ætti að vera svona. Það hefur fullan rétt á þeirri skoðun.

Ég hef mun frekar, eins og kannski aðrir í þessum sal, talað fyrir því að líklega sé á flestum sviðum gott að við höldum í ákveðna sérhæfingu inni í framhaldsskólunum og sérstöðu og að við stöndum vörð um hana í stað þess að reyna að fletja kerfið út. Maður hefur lýst efasemdum um að ákveðin skref séu stigin í þá átt. Svo neita menn fyrir það og það er gott og blessað. Mér finnst innritunarhugmyndin bera keim af því að menn vilji ná betri stjórn á því um allt land hvaða hópar fara inn í skólana. Af því að fólk segir að þetta sé bara tæknilegt og að þetta snúist bara um þessa heimild þá má nefna að verið er að fjalla um í greinargerðum og í umfjöllun um málið að hugsunin sé, eins og sagt er, að vinna gegn einsleitni í nemendahópnum; að allir framhaldsskólar axli ábyrgð á fjölbreyttum nemendahópi og að þetta sé gert í ljósi aukinnar umræðu um inngildingu í skólastarfi. Það sem ég er að benda á er að þetta eru augljóslega ákveðnar hugmyndafræðilegar forsendur fyrir því að taka aðra mælikvarða inn í framhaldsskólana og hleypa fólki inn á öðrum grundvelli en hreinum og beinum árangri.

Í því sambandi má náttúrlega líta til nokkurra hluta. Ég tel að það sé helst sanngirni í því að líta einmitt bara til árangurs, að allir hinir þættir fjölbreytileikans séu í mörgum tilvikum æðimatskenndir; þeir eru breytilegir og þeir eru auðvitað óbreytanlegir, þættir einstaklinganna, á meðan árangur er eitthvað sem þau sjálf geta lagt af mörkum, lagt sig fram og þannig náð árangri eingöngu út frá verðleikum að þessu marki. Hver árangurinn í náminu er; það sé í raun og veru hin sanngjarna leið. Það mismuni engum ef við segjum: Við erum bara að fara að taka tillit til árangursins.

Það er kannski helsti gagnrýnispunkturinn minn í þessu. Ég kann ekki við að menn séu að drepa þessu máli á dreif með því að láta eins og þetta snúist um eitthvað annað en það snýst um. Auðvitað snýst þetta ekki bara um að veita heimild, heldur er auðvitað öðrum þræði ákveðin hvatning falin í þessu til framhaldsskólanna um að taka inn á öðrum forsendum. Ég er vel meðvitaður um að í ákveðnum skólum er t.d. horft til kyns, það er verið að hleypa strákum inn einhvers staðar þar sem þeir hafa lent í minni hluta ef bara er litið til einkunna.

Ég er ekki talsmaður kynjakvóta í neinum skilningi. Ég vil mun frekar segja að ef það er misjafn árangur hjá ákveðnum hópum, hvort sem það er eftir kyni eða þjóðernisuppruna eða fötlun eða einhverju öðru, þessir klassísku þættir sem eru nefndir í þessu samhengi, ef árangurinn er misjafn upp úr grunnskólunum þá er það rót vandans. Þá þurfum við að skoða grunnskólann, hvað við erum að gera þar, en ekki að reyna að breiða yfir vandamálið með undarlegum inntökuaðferðum í framhaldsskólum. Þetta er einfaldlega mín sýn. Ég held að flestir Íslendingar deili þessari sýn en það eru auðvitað hugmyndafræðileg öfl að hluta til inni í menntakerfinu sem eru mjög áfram um þetta. Ég er bara að vara við því að menn láti draga sig út í aðgerðir sem geta hljómað vel á blaði en eru mögulega í raun og veru ekki til þess fallnar að hjálpa þessum svonefndu jaðarsettum hópum sem eru teknir til.

Þá væri hægt að ræða marga aðra þætti á þessu máli. Ég minnist þess nú í pólitískum skilningi, og það er ekki úr vegi að rifja það upp þegar við erum að ræða mál sem er endurflutt á nýju þingi, að þetta frumvarp, framhaldsskólafrumvarpið, var kynnt til leiks af hæstv. ríkisstjórn með þeim hætti að þetta væri frumvarpið sem myndi taka á þeim vanda sem við höfðum bent á í sambandi við grunnskólana. Þar eru samræmdu prófin ekki lengur við lýði, þótt nú hafi verið tekið upp ákveðið fyrirkomulag sem er í ætt við þau en er ekki alls kostar samræmt. Sá vandi sem skortur á samræmdum prófum skapar er að þegar í framhaldsskólann er komið er ekki unnt að treysta á að einkunnirnar séu gefnar eftir sömu mælikvörðum í ólíkum skólum. Það er í raun og veru ákveðið ójafnræði sem ríkir.

Við bentum á þennan vanda en hann var ekki leystur með grunnskólafrumvarpinu, heldur var sagt: Þetta verður skoðað í framhaldsskólafrumvarpinu. Það sem var svo gert í framhaldsskólafrumvarpinu, þessu sem hér er til umræðu núna, var að taka á óréttlætinu í raun og veru með því að gera það í einhverjum skilningi meira, þ.e. að gera þetta kerfi ógagnsærra og óskiljanlegra. Þetta er það sem manni finnst undarlegt frá hæstv. ríkisstjórn. Við erum oft með mál sem eru hálfónýt og þegar gagnrýnin kemur fram þá er manni lofað að eitthvað annað frumvarp sé nú við sjóndeildarhring sem eigi að laga þetta allt saman, svo þegar það frumvarp kemur þá dekkist myndin ef eitthvað er. Það var sannarlega niðurstaðan í þessu máli, alla vega hvað snertir þessa þætti í sambandi við innritunina, og skánaði sem sé ekki með nýju frumvarpi.

Í víðum skilningi, virðulegur forseti, þá kannski bendi ég á að hvað varðar menntakerfið almennt ítreka ég þá afstöðu mína að jafnræði og jafnrétti næst með því að meta fólk að verðleikum og hvetja það til að leggja sitt af mörkum og leggja sig fram, en ekki að draga fram einmitt óbreytanlega eiginleika fólksins, hvort sem það eru kyn eða þjóðernisuppruni eða annað eins, og fara og reyna að búa til plástur eftir plástur til þess að jafna út með alls konar kvótum þar sem einfaldlega er hægt að jafna út með því að hvetja fólk til dáða, segja: Standið ykkur vel, takið þátt, leggið ykkar af mörkum, og þau verði metin að verðleikum. Upplifun fólks og nemenda af innritun í framhaldsskóla núna — og ég hef talað við nemendur, ég hef lesið og heyrt og hlustað á það sem þau segja — er einfaldlega þannig að það er alveg augljóst fyrir þeim sem eru að fara inn í framhaldsskóla eða eru nýfarin í framhaldsskóla að það er ójafnræði í kerfinu. Það er staðan og stjórnvöld taka því ekki alvarlega. Þetta frumvarp er enn annað dæmi um það.