framhaldsskólar.
Frú forseti. Mig langar að fagna því að þetta mál sé komið til umfjöllunar og bind vonir við að við í allsherjar- og menntamálanefnd munum eiga góða vinnu og umfjöllun í nefndinni í kringum það líkt og við gerðum á vorönn. Það er margt jákvætt í þessu máli sem er verið að leggja hérna fram þó svo að það hefði jafnvel verið aðeins betra að lesa yfir það og breyta því út frá nýjum áformum. Það sem kemur hér fram og er mjög jákvætt eru m.a. markmiðin í þessu frumvarpi.
Það eru nokkur atriði sem mig langar aðeins að fara yfir og það er m.a. vinnustaðanámið. Það er verið að leggja fram breytingar sem miða að því að styrkja og bæta lagagrundvöll reglugerðar um vinnustaðanám og þessar breytingar lúta einkum að því að skýra ábyrgð framhaldsskóla á því að iðnnemandi eigi kost á vinnustaðanámi. Þetta hefur svolítið verið í umræðunni, m.a. í mínu kjördæmi, Norðausturkjördæmi, hvernig við getum látið atvinnulífið og skólana vinna betur saman vegna þess að við vitum að rekstur skólanna gengur stundum erfiðlega og brösuglega. Fyrirtæki eru jafnvel að styrkja skólana með tækjum og tólum og búnaði til þess að geta sinnt iðnnámi, sem dæmi, og hafa jafnvel verið að bjóðast til að taka nemendur til sín í hálfgert starfsnám og vinna betur með skólum. Það hefur verið ákall eftir því, veit ég, fyrir austan þar sem vantar mikið af iðnnemum. Af því að ráðherra er að hlusta vil ég bara hvetja hann til samtals og það væri kannski áhugavert að heyra hjá honum ef hann kemur hér í samantekt á eftir hvernig hann sér fram á að geta eflt enn betur samstarf milli framhaldsskóla og atvinnulífsins því að ég held að það séu alveg bullandi tækifæri til að gera betur þar.
Það sem mig langaði líka aðeins að koma inn á er innritun nemenda í framhaldsskóla. Þetta var svolítið rætt í nefndinni hjá okkur og það komu frá umsagnaraðilum alls konar sjónarmið í tengslum við þetta varðandi námsárangur og hvernig eigi að innrita í framhaldsskóla. Það er verið að leggja til vissar breytingar, að það sé verið að horfa til fleiri mælikvarða þegar er verið að innrita nemendur. Ég er persónulega þeirrar skoðunar að það sé alltaf mikilvægt að velta við öllum steinum og athuga hvort við getum gert betur. Ég held að við getum alltaf gert að einhverju leyti betur og mætt alls konar áskorunum, ég tala nú ekki um í breyttu samfélagi eins og við erum í í dag. Það er komin meiri breidd í samfélagið og allir þurfa að fá sín tækifæri og menntun. Í rauninni má segja að grunnskólar og framhaldsskólar séu eitt stærsta og öflugasta jöfnunartæki sem við höfum í samfélaginu.
Það er samt sem áður þannig að námsárangur og mælikvarðar á námsárangur, þetta er orðið svolítið flóknara í dag. Sjálf er ég menntaður kennari og starfaði sem slíkur um árabil og sjálf fylgdi ég vissri þróun í því hvernig við vorum að leggja mat á árangur nemenda. Það er auðvitað afar mikilvægt að horfa til margra þátta en huglægi þátturinn er orðinn miklu stærri í dag heldur en hann var áður. Ég held að það sé mikilvægt að huglægir þættir komi inn en hins vegar þurfum við líka að hafa hlutlæga mælikvarða til staðar. Maður veltir því stundum fyrir sér hvort hægt sé að hafa hlutlæga mælikvarða á bak við þessa huglægu en þeir vinni saman og a.m.k. sé það þannig að foreldrar skilji einkunnir barnanna sinna. Það er nefnilega oft þannig fyrir foreldra, og ég heyri það í samtölum við þá, að þeir eru að fara inn á Mentor eða aðra vefi og skilja ekki hvar barnið þeirra er statt námslega. Þetta er kannski eitthvað sem við þurfum að taka til okkar og vera tilbúin til að endurskoða. Kannski þarf meira gagnsæi í þetta. Ég er ekki að segja að við séum á rangri leið en við þurfum kannski að hafa þetta gagnsærra og skýrara til þess að bæði nemendur og foreldrar átti sig á námslegri stöðu.
Það var líka aðeins talað um alls konar í kringum nemendaráðin og ýmislegt sem ég sé að er áfram rætt um. Það er auðvitað búið að taka tillit til einhverra umsagna sem hafa komið fram við vinnslu málsins núna á vorönn, sem er mjög jákvætt, en það er nú kannski aðallega það sem hefur verið rætt svolítið hér í dag sem stendur út af að mínu mati.
Ráðherra kom hér upp áðan og sagði, með leyfi forseta: Þetta mál kom fram áður en ég tók við. Það er alveg rétt að þetta mál var tilbúið áður en hæstv. ráðherra tók við og var flutt hér í þinginu en hins vegar er það auðvitað val ráðherrans að endurflytja málið eða ekki og hvort hann vilji gera einhverjar breytingar á núverandi máli eða ekki. Ég vísa því svolítið til föðurhúsanna að hér sé verið að skýla sér á bak við að þetta sé eldra mál. Ég hvet bara ráðherra — ég meina, við erum alveg mannleg og við gerum mistök og áform og aðstæður breytast dag frá degi og það getur vel verið að þetta mál hafi verið tilbúið og að hæstv. ráðherra hafi bara ætlað að leggja þetta fram. En svo koma áformin um svæðisskrifstofurnar fram og það gleymist bara hreinlega að yfirfara þetta mál. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur í allsherjar- og menntamálanefnd að fá það á hreint frá ráðherra hvort það sé rétt sem kemur fram hjá Stjórnarráðinu, að stofna eigi þessar svæðisskrifstofur og að þær eigi að taka við rekstrarlegum þætti framhaldsskólanna, vegna þess að hér er verið að leggja til samstarf framhaldsskólanna, sem er mjög jákvætt.
Ég er miklu hlynntari meiri samvinnu og samstarfi heldur en samruna og sameiningu. Sjálf var ég ein af þeim sem reis upp þegar sameina átti Verkmenntaskólann og Menntaskólann á Akureyri og mótmælti harðlega. Samvinna er alltaf af hinu góða en til þess að skólameistarar geti sinnt hlutverki sínu og gert samninga, m.a. á rekstrarlegum forsendum, þurfa þeir að hafa völdin til að geta gert slíka samninga, að ekki sé búið að yfirfæra þau yfir á svæðisskrifstofurnar, eins og kemur fram í tilkynningu á stjórnarráðsvefnum. Það fer ekki alveg saman hljóð og mynd þannig að eðlilega erum við að verja tíma í þá umræðu í dag til að fá á hreint: Hvar á þessi rekstrarlega ábyrgð heima? Á hún heima hjá svæðisskrifstofum? Er verið að hugsa það eða er það bara eitthvað sem er rangt og þarf þá að leiðrétta á vefnum? Vegna þess að við getum, eins og hæstv. ráðherra kom inn á áðan, alltaf gert góð mál betri.
Hæstv. ráðherra kom líka inn á hér áðan að efla ætti Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og ég fagna því mjög að það eigi að gera. Ég vil samt nýta tækifærið af því að ráðherra er hér í salnum og spyrja aðeins út í það af hverju frumvarpið kemur ekki fram fyrr en á næsta þingi, af því að ég veit að þetta hefur verið í vinnslu í ráðuneytinu frá því að frumvarpið um stofnun Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu var lagt fram og þá var lögð rík áhersla á að næsta frumvarp yrði lagt fram eins fljótt og auðið væri til þess að styrkja og efla Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Og ef það á að gera það, af hverju kom það mál ekki fram á vorþingi og af hverju er það ekki komið fram núna á haustþingi? Það er nefnilega afar mikilvægt líka að hljóð og mynd fari saman.
Ég kom svolítið inn á þetta áðan varðandi samvinnuna og að rekstrarleg og fagleg samvinna sé í eðli sínu samofin vegna þess að ákvörðun um námsframboð eða nýja námsbraut hefur auðvitað beinar fjárhagslegar afleiðingar og ef skólameistarar hafa ekki rekstrarlega hlutann hjá sér þá er í rauninni ekki verið að stytta boðleiðir heldur er verið að lengja í þeim og þeir hafa þá væntanlega ekki heimildir til að gera slíka samninga. Það sama er með skipulag, kennslu og starfsþróun kennara sem hefur rekstrarlegt vægi og eins með stoðþjónustuna, námsráðgjöf og sálfræðiþjónustu. Ég hef ekki heyrt neinn tala um að það eigi að taka það út úr skólunum heldur eigi frekar að færa það í auknum mæli inn í skólana, sem mér finnst mjög mikilvægt og er fylgjandi því.
Í öllu slíku er auðvitað bæði um faglegan og fjárhagslegan hluta að ræða þannig að í reynd er ekki hægt að tala um faglega samvinnu án þess að fjalla jafnframt um rekstur, fjármagn og mannaforráð sem í þessu tilfelli er núna hjá skólameisturum og verður hjá skólameisturum, a.m.k. þangað til og ef svæðisskrifstofurnar koma og ef það verkefni á að vera eins og kemur fram á vefnum. Ef maður les tilkynningarnar varðandi hlutverk svæðisskrifstofanna og áformin, og ég veit að þetta eru áform, þá er það nákvæmlega eins og ábyrgð skólameistara er í dag. Þannig að ef ekki á að taka neitt verkefni af framhaldsskólunum hvað eiga þá svæðisskrifstofurnar að gera annað en það sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og skólameistarar eiga ekki að vera að gera í dag og í framhaldinu?
Það má því alveg spyrja sig og hæstv. ráðherra tekur þetta kannski inn hér á eftir og mér þætti vænt um ef hann myndi svara því: Til hvers er verið að setja sérstaka lagaheimild um rekstrarsamvinnu milli framhaldsskóla ef ábyrgð á rekstrinum er síðan tekin frá þeim? Eins líka: Hvernig geta skólar átt samstarf um stoðþjónustu eða rekstur ákveðinna þátta ef þeir hafa hvorki fjárhagslegt sjálfstæði né mannaforráð til að framkvæma slíkt? Ef stefnt er að því að færa rekstur og mannauð og stoðþjónustu undir svæðisskrifstofurnar þá er þessi heimild í frumvarpinu í rauninni í besta falli mjög óljós. Mér þætti vænt um það ef hæstv. ráðherra gæti komið aðeins inn á þessar vangaveltur. Ég sé að hann er búinn að flagga því að koma í andsvar við mig en það væri bara mjög gott að fá einhver skýr svör því að hingað til í þessari umræðu höfum við ekki fengið nægilega skýr svör hvað þetta varðar.
En svona að lokum, af því að nú erum við hérna að ræða framhaldsskóla og það verður sérstök umræða um menntamál á fimmtudaginn þar sem ég mun alveg örugglega eitthvað tæpa á þessu, þá er það sem ég er að velta fyrir mér varðandi framhaldsskóla og stöðu einstaklinga sem falla kannski ekki alveg inn í rammann — það hefur verið mikið rætt um stöðu einhverfra barna í skólakerfinu undanfarið, það var fjallað um það í fréttum og foreldrar hafa komið fram með áhyggjur af stöðunni, að þau falli svolítið á milli kerfa, sem er bagalegt. Við erum með skólaskyldu og við erum með einstaklingsmiðað nám. Í rauninni er einstaklingsmiðað nám mjög fallegt hugtak en það þarf líka að virka í framkvæmd. Sem kennari hef ég sjálf þá reynslu, því miður þó að allir hafi viljað gera vel, að það hafi ekki virkað nægilega vel í framkvæmd í tengslum við barnið og hagsmuni barnsins.
Mig langaði því aðeins að spyrja hæstv. ráðherra, af því að það er vissulega skólaskylda á meðan við erum með börn: Hefur hæstv. ráðherra eitthvað hugsað út í það að ef við erum með skólaskyldu þá erum við ábyrg fyrir því að útvega skóla sem geta tekið á móti öllum nemendum og veitt þeim fræðslu eða eigum við að vera með fræðsluskyldu þannig að okkur beri bara að fræða börnin án þess að það sé skólaskylda? Það væri kannski áhugavert að fá að heyra hans nálgun á þetta en mér finnst afar mikilvægt að þegar við erum með eitthvað sett í lög að við framfylgjum því sjálf að útvega þá þjónustu sem við erum að gera kröfu um að aðrir sæki.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Ég bíð spennt eftir andsvörum hæstv. ráðherra og eins bind ég vonir við að við fáum ansi góðar umsagnir í tengslum við þetta mál inni í allsherjar- og menntamálanefnd og tökum það góðum tökum í góðri samvinnu eins og hefur verið hingað til í þeirri nefnd.