framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Þetta er eiginlega búið að snúast svolítið við, ég er að koma með spurningarnar og hann er að koma með svörin. Ég er mjög þakklát fyrir það vegna þess að það er stundum erfitt að koma öllu að í stuttum andsvörum þar sem þú færð tvær og eina mínútu. Ég þakka honum fyrir svörin og það er ánægjulegt þetta mál með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. En ef það á ekki að taka reksturinn og aðstoða framhaldsskóla með rekstur í tengslum við svæðisskrifstofurnar eins og kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins, það kemur skýrt fram þar í texta að þær eigi að sjá um rekstur, þá velti ég fyrir mér: Hvert er þá hlutverk svæðisskrifstofa? Ég veit að þetta er í vinnslu en einhver hugmynd hlýtur að vera í kringum það að stofna fjórar til sex svæðisskrifstofur. Það hlýtur að vera einhver framtíðarsýn á það, ekki bara: Við ætlum að stofna þetta og svo ætlum við bara að sjá til hvað þær eigi að gera og við segjum eitt, að þær eigi að gera þetta, en svo erum við að draga til baka núna og þær eiga ekki að gera það, heldur á það bara eftir að koma í ljós. Ég er bara ekki alveg að ná utan um hlutverk svæðisskrifstofa, hvernig það er hugsað.
Ég er sammála hæstv. ráðherra með það að við eigum að veita gæðakennslu og ég er líka sammála því sem kom fram áðan að sami aðili á ekki að sjá um þjónustu og eftirlit. Þess vegna var einmitt Miðstöð menntun og skólaþjónustu stofnuð til að sinna ákveðinni þjónustu og það væri ekki á sömu hendi. Þá kemur einmitt að þessu ytra mati, sem er afar mikilvægt að gera með reglubundnum hætti og hefur ekki verið gert nægilega vel undanfarin ár, það verður bara að segjast eins og er. Þar hefur verið víða pottur brotinn og ég bind vonir við að ráðherra taki það föstum tökum og setji fjármuni til að geta sinnt því, einmitt til þess að efla gæði náms.