framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur kærlega fyrir andsvarið. Hún talar um að þessi mál tengist ekkert, varðandi svæðisskrifstofurnar og frumvarpið sem er hérna. Mig langar að lesa hér upp, með leyfi forseta, það sem kemur fram í frumvarpinu. Þar er sagt:
„Framhaldsskólum er heimilt að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Þegar um er að ræða samninga sem hafa veruleg áhrif á rekstur skóla skulu þeir staðfestir af ráðherra að fenginni umsögn skólanefnda viðkomandi skóla.“
Í greinargerðinni segir jafnframt að markmið frumvarpsins sé að styðja við samstarf milli framhaldsskóla, bæði faglegt og rekstrarlegt. Sérstaklega eru nefndir samningar sem varða rekstur stoð- og skólaþjónustu. Það sem kemur síðan fram á vef Stjórnarráðsins varðandi svæðisskrifstofurnar er, með leyfi forseta:
„Svæðisskrifstofurnar verða staðsettar í nærumhverfi og hafa það hlutverk að halda utan um rekstur skólanna og veita þeim stuðning og þjónustu.“
Nú var hæstv. ráðherra að segja hér í andsvörum við mig áðan að svæðisskrifstofurnar ættu ekki að taka utan um reksturinn. Ég er að reyna að skilja þetta. Ég er ekki alveg að ná að átta mig á hvað skólameistarar eigi að gera varðandi samninga og samvinnu og rekstrarlegar forsendur og hvað svæðisskrifstofurnar eigi að gera. Þess vegna var ég að koma inn á það áðan.
En varðandi aukin fjárframlög til framhaldsskóla varðandi sálfræðinga þá fagna ég því svo sannarlega. Eins og ég kom inn á áðan er víða pottur brotinn og við þurfum að einbeita okkur miklu meira að andlegri heilsu barna og ungmenna og öllum þeim breytum sem geta haft áhrif á líðan þeirra og styðja þau eins og við mögulega getum. Sálfræðiþjónustan mun svo sannarlega hjálpa til þar og meiri sérfræðikunnátta líka. Þetta er fyrsta skrefið og ég fagna því mjög.