framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Það er nú þannig hér í pontu Alþingis að okkur er ljúft og skylt að segja satt og rétt frá. Það gerði ég áðan vegna þess að þegar þessi umræða hófst talaði fyrrverandi menntamálaráðherra um að það ætti að byrja að skoða kosti þess og galla að sameina Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri. Það er fínt að fara í fýsileikakönnun og skoða svoleiðis og vega og meta og taka svo ákvörðun út frá því. Hins vegar breyttist vegferðin í að það ætti að skoða þetta í að það væri búið að taka ákvörðun um það, ekkert ósvipað því með svæðisskrifstofurnar. Ég mótmælti því harðlega. Ég gerði það bæði inni á þingflokksfundum og ég gerði það líka í fjölmiðlum. Ég hvet hv. þingmann til að gúgla hreinlega sameiningu Verkmenntaskólans og Menntaskólans á Akureyri og nafnið mitt og þar munu koma örugglega þó nokkrar fréttir þar sem ég m.a. skora á ráðherra að endurskoða ákvörðun sína sem hann á endanum gerði og bakkaði út úr þessu. Ég tel að sá þrýstingur, ásamt öðru góðu fólki sem hjálpaði mér í þessari vegferð, hafi orðið til þess að ekki varð af þessari sameiningu. Maður heyrði það líka hjá skólameisturum að það eru vissulega mismunandi skoðanir á þessu en allir töldu tækifæri til frekari samvinnu. Þess vegna fagna ég því sem kemur fram hér varðandi þetta frumvarp, að það sé verið að leggja áherslu á aukna samvinnu á milli framhaldsskóla sem er mjög mikilvægt og er forsenda þess einmitt að við getum eflt skólana. Við getum aukið gæði kennslu og þar af leiðandi nám nemenda sem á að vera leiðarljós okkar allra sem störfum í kringum börn og þennan geira.