157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[18:33]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Við ræðum hér um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla (viðurkenning námsbrautarlýsinga o.fl.). Það er alltaf ánægjulegt að fá tækifæri til að fjalla hér um málefni sem snerta að mínu mati eitt mikilvægasta verkefni samfélagsins sem er menntun ungs fólks. Frumvarpið sem við ræðum í dag snýst í grunninn um að einfalda og skýra ferli við viðurkenningu á námsbrautarlýsingum í framhaldsskólum. Þetta kann að hljóma svolítið tæknilegt við fyrstu sýn en í raun og veru er þetta spurning um aukið frelsi til nýsköpunar í menntakerfinu, aukið traust til skólasamfélagsins og framtíðarmöguleika nemenda. Nú var ég ekki í allsherjar- og menntamálanefnd í vor þegar málið var tekið fyrir á þingi og fylgdi málinu ekki úr hlaði í nefndarvinnunni þá en er komin núna í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég hlakka því til að takast á við þetta mikilvæga mál í nefndinni og hef hlustað á umræðurnar í dag og átta mig á því að það eru einhverjar spurningar sem á eftir að svara og ég býst við því að við munum leiða hið sanna í ljós í nefndarstörfunum.

Frumvarpið gerir sem sagt ráð fyrir því að skýra betur heimildir ráðherra til að viðurkenna námsbrautarlýsingar og tryggja samræmi í gæðum milli skóla og auðvelda auðvitað líka nýjar námsleiðir sem kannski falla ekki endilega að þessum hefðbundna ramma, þannig að það er verið að auka þennan sveigjanleika. Mér finnst mjög áhugavert að taka umræðuna almennt um menntaskólakerfið á þessum grunni, hvernig við getum hannað kerfi sem er sveigjanlegt, fjölbreytt og ýtir ekki endilega undir einsleitni, þar sem sérkenni skóla fá að njóta sín. Eins og ég hef hlustað eftir í umræðunni í dag og í vor líka, þá geri ég mér grein fyrir því að hér er eingöngu verið að innleiða í lög ákveðna hluti sem eru nú þegar í gangi í skólakerfinu. Það er bara verið að styrkja þessar stoðir til þess að auka væntanlega skýrleika laganna og væntingar til skólastjórnenda og fagfólks. Það sem mér finnst líka mikilvægt í þessu frumvarpi er að það er áhersla á þessa viðurkenningu og að skólarnir sjálfir geti verið í lykilstöðu til að sjá þörfina fyrir nýjar leiðir og ný tækifæri, að við séum ekki einhvern veginn að festa okkur of mikið í einhverri einni formúlu heldur séum líka að ýta undir sérkenni skólanna og auka frelsi þeirra til þess. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ráðherra geti sett reglur um hvernig meta skuli þessar lýsingar og það er bara fínt mál. En það verður líka að tryggja um leið að þessar reglur verði hvorki of íþyngjandi né hamlandi, að kerfin taki ekki yfir og við séum enn þá með frelsi skólastjórnenda til að tryggja þessa vinnu.

Við vitum auðvitað að það hafa alls konar hugmyndir verið um framhaldsskólastigið lengi. Það hafa verið hugmyndir um sameiningar á síðasta kjörtímabili. Þegar ég tala við skólameistara þá tala þeir mjög gjarnan um þörfina á aukinni samvinnu, að það sé mikilvægt að geta unnið saman, nýta fagþekkingu milli stofnana og það hefur verið að gerast í auknum mæli. Ég þekki dæmi um það fyrir vestan, Menntaskólinn á Ísafirði er í mjög góðu samstarfi við aðra menntaskóla og verkmenntaskóla um námsbrautir og um það hvernig hægt er að samtvinna þessa þætti. Það hefur gengið mjög vel og ég held að það sé bara jákvætt mál að leiða það og taka þá umræðu á dýpri grunni. Ég fagna því alltaf að tala hér um stöðu menntakerfisins okkar, um stöðu unga fólksins okkar og hvernig við getum ýtt betur undir tækifæri þess til menntunar og tækifæri til að finna sína fjöl, af því að það er í grunninn það sem við erum að gera með þessu kerfi. Við erum að tryggja að það séu til alls konar leiðir sem ýta undir þann fjölbreytileika. Mér finnst líka mikilvægt í þessu ljósi að við séum með skýrari ramma að ýta undir það að menntakerfið geti verið kvikara, að við séum ekki að búa til einhverjar hömlur eða seigfljótandi kerfi sem gerir það að verkum að hlutirnir taki meiri tíma eða að stjórnsýslan einhvern veginn flæki málin. Mér sýnist það vera viðleitnin hér, að einmitt taka skrefið til baka og færa völdin meira til fagfólksins. Við viljum auðvitað að ungt fólk á Íslandi geti valið sér nám sem nýtist bæði hér heima og á alþjóðavettvangi og það er auðvitað ekki gert nema við séum með sveigjanlegt kerfi og við séum með kerfi sem viðurkennir nýsköpun og virðir faglegt frelsi skólanna.

Það eru nokkrar spurningar sem vakna við lestur frumvarpsins sem ég held að sé mjög mikilvægt að við getum svarað, til að mynda hvernig við getum tryggt að viðurkenningarferlið sé gagnsætt og að samráð sé raunverulega haft við skólana. Það er eitt að segjast ætla að eiga samtal og samráð og það er annað að gera það og ég bind miklar vonir við að það sé reyndin hér. Og hvernig komum við í veg fyrir að of mikið vald safnist á hendur ráðuneytisins þegar kemur að því að samþykkja eða hafna nýjum námsleiðum? Ég vil tala fyrir þjónandi stjórnsýslu sem er opin en ekki stjórnsýslu sem er einhvers konar þröskuldur eða hindrar framgang mála. Þess vegna finnst mér mjög mikilvægt að það sem er leitt í lög hér verði ekki að enn einum flöskuhálsinum, heldur einmitt opni einhverjar gáttir fyrir nýsköpun, fyrir aðrar leiðir og fyrir frjórra kerfi.

Ég held að það sé líka mikilvægt í þessu ljósi að líta til þess að viðurkenning námsbrauta getur líka verið aukið tækifæri til að mæta þörfum atvinnulífsins í samstarfi við atvinnulífið og hvernig við getum tryggt þetta samtal á milli framhaldsskóla, atvinnurekenda og háskóla um það hvaða hæfni skipti máli á næstu árum og næstu misserum. Við erum auðvitað að þróast mjög hratt. Við erum komin hér með gervigreind sem var ekki jafn þróuð og hún er í dag bara fyrir einu ári síðan. Við höfum enga hugmynd um hvernig staðan verður eftir tíu ár, eftir 20 ár og hvað það er sem við þurfum að undirbúa okkur fyrir. Það er gríðarlega stór spurning og stór áskorun sem við stöndum frammi fyrir núna, þ.e. hvernig við ætlum að undirbúa börnin okkar fyrir framtíðina vegna þess, svo ég tali nú bara fyrir mig, að mér finnst hún breytast mjög hratt. Ég var að klóra mér í kollinum yfir þessari gervigreind fyrir ári síðan og einhver vinkona mín var að sýna mér einhvern fítus og ég hugsaði: Þetta er bara einhver tóm steypa. Mér fannst hún svo vitlaus og við vorum hlæjandi að því hvað það var sem kom út úr henni. En í dag er hún orðin alveg ofboðslega klár og við þurfum að hafa tæki og tól til þess að mæta þessu í skólakerfinu og líka þegar við erum að hanna kerfi framtíðarinnar.

Annað dæmi er það sem ráðherra hefur opnað á og er efni í aðra umræðu, sem er snjallsímarnir og samfélagsmiðlarnir og þessi pólarísering sem við sjáum í tilverunni. Unga fólkið okkar lifir í ólíkum bergmálshellum og við öll í raun og veru. Við erum öll fangar í einhverjum hlekkjum samfélagsmiðla, í hlekkjum algóritma sem gera það að verkum að minn veruleiki er ekkert endilega sá sami og hv. þingmanna hérna inni. Það er risastór áskorun fyrir skólasamfélagið og fyrir skólakerfið í heild að mæta þeirri áskorun. Ég sé því fyrir mér að þetta frumvarp geti sannarlega skapað grundvöll fyrir meiri samvinnu við t.d. nýsköpunarfyrirtæki, menntasetur, sveitarfélög o.s.frv. fyrir umræðu um hvernig við ætlum að að ýta undir þessar stoðir.

Svo ætla ég að fá að taka smá landsbyggðarvinkil hér, verandi landsbyggðarþingmaður. Mér finnst mjög mikilvægt að átta okkur á því líka að við þurfum að huga að því hvernig aðgengi að nýjum námsleiðum getur verið jafnt, hvernig við getum tryggt það að krakkarnir okkar um allt land fái tækifæri til að spreyta sig á þeim áhugasviðum sem þeir geta í heimabyggð. Það er mjög mikilvægt jafnréttismál. Það er mikilvægt byggðamál að börnin okkar geti sótt sér menntun sem lengst heima. Ég þekki það á eigin skinni og það er ágætt að ýta undir það að með aukinni samvinnu sé möguleiki á því. Það má samt ekki vera þannig að stærri skólar í þéttbýli sem hafa alla þessa burði fái viðurkenningu en minni skólar úti á landi sitji eftir vegna skorts á sérfræðingum eða stuðningi. Það er risastór áskorun sem við verðum að tryggja og að stuðningskerfið sé til staðar fyrir smærri framhaldsskóla sem vilja sækja um viðurkenningu á námsbrautum.

Mér finnst þetta frumvarp vera skref í rétta átt að opnara, nútímalegra og skilvirkara menntakerfi. Það eru þarna atriði sem ég hef hlustað eftir hér í dag varðandi 14. gr. og annað sem ég held að nefndin muni fjalla vel um. Almennt er ég mjög hlynnt frelsi og er frjálslynd kona í grunninn þannig að ég hjó eftir einhverri umræðu um forræðishyggju og annað sem ég ætla að fá að glöggva mig betur á í nefndinni. En þetta er skref í rétta átt og ég fagna því að við séum að ræða framhaldsskólakerfið og ég fagna því að mennta- og barnamálaráðherra hafi opnað á þá umræðu.

Hér í dag hafa þingmenn annaðhvort verið að ræða þetta frumvarp hér eða verið að reyna að skeyta samráðsferli ráðherrans sem hann á í núna við þetta frumvarp. Ég sé ekki heildarmyndina svona, ég trúi því að þetta séu sitthvor áformin. Hitt er eitthvað sem bíður bara betri tíma að ræða en þau áform sem eru hér eru eitthvað sem ég held að við getum vel unnið með í þinglegri meðferð. Við þurfum því bara að klára þessa umræðu hér, taka málið inn í allsherjar- og menntamálanefnd, fá gesti, fá sjónarmið og það er þannig sem þingleg meðferð virkar og ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni í nefndinni. Ég mun leggja áherslu á samráð við bæði skóla og fagfólk í umræðu um þetta mál og hlakka mikið til að takast á við þetta ásamt félögum mínum í allsherjar- og menntamálanefnd.

Ég þakka fyrir góða umræðu í dag og þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að vera hér með okkur í dag og eiga gott samtal.