Störf þingsins.
Frú forseti. Hér hefur margt verið gert á skömmum tíma. Það hefur verið tekið hratt til í efnahagsmálum eftir óráðsíu síðustu ára sem skilaði um tíma tveggja stafa verðbólgu og stórauknum útgjöldum fyrir íslensk heimili. Hér hefur aðhald verið aukið með nýrri ríkisstjórn, halli á fjárlögum næsta árs verður lítill og boðuð hafa verið hallalaus fjárlög 2027. Vextir hafa lækkað um 1,5 prósentustig frá því boðað var til kosninga. En betur má ef duga skal. Í morgun var greint frá því að stýrivextir muni haldast óbreyttir næsta mánuðinn sem eru vonbrigði. Þrátt fyrir að töf hafi orðið á áframhaldandi lækkun stýrivaxta þá er jákvæður tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans. Þar segir, með leyfi forseta:
„Greinilegur viðsnúningur hefur orðið í þróun efnahagsumsvifa undanfarið og spennan í þjóðarbúinu hefur hjaðnað í takt við þétt taumhald peningastefnunnar.“
Seðlabankinn telur því að margt sé að þokast í rétta átt eftir að skipt var um ríkisstjórn undir lok síðasta árs. Forsætisráðherra hefur ítrekað sagt að ef það þarf að gera meira hraðar til að ná þeim árangri þá munum við gera meira hraðar. Það er m.a. verið að gera meira með húsnæðismála- og efnahagspakka sem verið er að leggja lokahönd á og verður kynntur í nánustu framtíð. Með honum er ríkisstjórnin að bregðast við aðstæðum með aðgerðum sem eiga að hafa þau áhrif að íbúðarhúsnæði sé skilgreint sem heimili, ekki fjárfestingarvara. Með pakkanum sem er í farvatninu, auk mála sem eru nú þegar komin til Alþingis, er ríkisstjórnin að mæta þeim hópum sem verða helst fyrir barðinu á hinu háa vaxtastigi; ungu fólki, skuldsettu fólki, þeim sem eru á leigumarkaði. Það er verið að gera meira hraðar vegna þess að það er það sem þarf að gera. Við bíðum ekki og vonum að þetta sé að koma. (Gripið fram í: Sleggja.)