157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Fyrir hvern er þessi ríkisstjórn að vinna? Stýrivextir hreyfast ekki. Verðbólga hreyfist ekki. Eitt hreyfist að vísu og það er á uppleið og það eru skattar á almenning. Í hvað fara þessir skattar? Tugir milljarða renna í útlendingamál og ýmis gæluverkefni íslenskra stjórnvalda lengst úti í heimi. Maður vill varla opna vef utanríkisráðuneytisins; með nokkurra daga millibili er tilkynnt um 60 millj. kr. framlag til rampaverkefnis í Úkraínu. Stuttu síðar er tilkynnt um 150 millj. kr. framlag til alþjóðlegra hinsegin samtaka í Bandaríkjunum. Það virðist gleymast að á meðan fara þessar 200 millj. kr. og þessir tugir milljarða ekki í nauðsynleg verkefni á Íslandi. Peningurinn fer ekki í að hjálpa ungmennum sem eru í fíkniefnavanda á Íslandi. Peningurinn fer ekki í að efla skólakerfið sem er að bregðast börnunum okkar. Hann fer ekki í hjúkrunarheimili fyrir fólk sem er búið að borga skatta hérna alla ævi. Hann fer ekki í að bæta stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði sem er orðin þannig að fólk sér ekki tækifæri til að fjölga sér lengur. Hann fer ekki í að styrkja stöðu landbúnaðarins. Hann fer ekki að styrkja stöðu tungumálsins eða þjóðmenningarinnar. Hann fer með öðrum orðum ekki í að byggja upp okkar þjóðfélag.

Þess vegna spyr ég, virðulegur forseti: Fyrir hvern er ríkisstjórnin að vinna? Er það fyrir útlendinga? Er það fyrir fína fólkið í útlöndum á fundunum sem ráðherrarnir vilja mögulega ganga í augun á? Eða er það fyrir íslenskan almenning? Því að ef svo er þá minni ég á að íslenskur almenningur er ekki að greiða skatta hér til þess að stjórnmálastétt geti lifað í sjálfsblekkingu um að hún sé að bjarga heiminum. Þvert á móti þá held ég að flestir átti sig á því að Íslendingar þurfa að byrja á að bjarga sjálfum sér.