Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í júní 2020 samþykkti Alþingi þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Þar var m.a. kveðið á um stofnun forvarnateyma í grunnskólum sem hefðu það hlutverk að tryggja fræðslu í öllum árgöngum, styðja kennara og starfsfólk og sjá til þess að þekking og þjálfun á því sviði væri tryggð. Samkvæmt mælaborði dómsmálaráðuneytisins er aðgerð C.1, sem fjallar um þessi teymi, nú merkt sem lokið, en eins og fram kemur í fyrirspurn sem ég hef þegar beint til hæstv. mennta- og barnamálaráðherra er ljóst að þetta er ekki verkefni sem hægt er að merkja sem fullunnið. Forvarnir eru gríðarlega mikilvægar sem þurfa stöðugan stuðning og eftirfylgni.
Þegar kallað var eftir upplýsingum í vor um hlutfall starfsfólks sem lokið hefði námskeiði um þessi mál bárust svör frá aðeins 60% grunnskóla. Það sýnir að víða er vel unnið en við eigum enn langt í land með að fá heildaryfirsýn. Það er því mikilvægt að tryggja markvissa upplýsingasöfnun og reglubundna endurskoðun á stöðunni. Einnig ber að skoða reynsluna af sameiginlegum teymum milli smærri skóla sem mörg sveitarfélög hafa nýtt sér með góðum árangri.
Að lokum vil ég minna á að ungmennin sjálf hafa ítrekað kallað eftir aukinni fræðslu og raunhæfum aðgerðum. Við berum ábyrgð á því að taka þessum skilaboðum alvarlega og sjá til þess að forvarnateymi grunnskóla verði lifandi afl, ekki verkefni sem sofnar á blaði.