Störf þingsins.
Frú forseti. Menntamálaráðherra hefur kynnt til leiks miklar breytingar á rekstri framhaldsskóla. Stefnt er að því að stofna fjórar til sex svæðisskrifstofur um land allt sem eiga að taka yfir rekstrartengd verkefni framhaldsskóla. Á heimasíðu ráðuneytisins segir, með leyfi forseta:
„Þessi leið — að sameina stjórnsýslu og færa rekstur og mannauðsmál frá skólunum — tryggir að skólarnir haldi sérstöðu sinni og nafni, en fá betri þjónustu og markvissari stjórnsýslu.“
Þetta þýðir með öðrum orðum að stjórnendur framhaldsskóla missa umboð sitt til að taka ákvarðanir og gera samninga. Á vissan hátt eru þeir þá ekki hefðbundnir stjórnendur lengur. Þetta eru í rauninni ekkert smávægilegar breytingar heldur er verið að leggja til hérna nýtt stjórnsýslustig, en gott og vel.
Í gær flutti svo mennta- og barnamálaráðherra frumvarp þar sem framhaldsskólum er veitt víðtæk heimild til að gera samstarfssamninga við aðra skóla um rekstrartengd mál og stoðþjónustu. Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Dæmi um slíka samninga er ef skólar ákveða að reka saman stoð- eða skólaþjónustu eða eiga samvinnu um námsframboð.“
Samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu nær stoðþjónusta til allra helstu rekstrarþátta utan kjarnastarfsemi, svo sem fjármála, bókhalds, mannauðs, launa, tölvukerfa, innkaupa, húsnæðis og stjórnsýslu. Hér er verið að leggja til að skólar fái frekari heimildir til að gera samninga og bæta rekstur sinn á sama tíma og verið er að taka hlutverkið af þeim annars staðar. Það sem kom e.t.v. mest á óvart í gær voru svör ráðherrans sjálfs þar sem hann fullyrðir að engin tengsl væru á milli þessara tveggja mála. Á sama tíma og ráðherra vill auka sjálfstæði framhaldsskóla með því að heimila enn frekari samninga um rekstrartengd málefni eru í gangi áform um að færa einmitt þau málefni, rekstur, mannauðsmál og stoðþjónustu, undir svæðisskrifstofur — og það kemur fram í gögnum hæstv. ráðherra sjálfs. Þrátt fyrir þetta fullyrti ráðherra í gær að það ætti ekki að færa rekstur framhaldsskóla yfir til svæðisskrifstofa, þrátt fyrir að það standi skýrum stöfum á vef Stjórnarráðsins (Forseti hringir.) og í tilkynningu ráðuneytisins.
Maður veltir því fyrir sér hver sé framtíðarsýnin í þessum mikilvæga málaflokki. Það hlýtur að teljast eðlilegt að Alþingi geri athugasemdir við slík vinnubrögð (Forseti hringir.) þar sem boðuð stefnumótun stjórnvalda er hvorki samrýmd né skiljanleg.