Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar hér í dag að ræða eitt af stóru byggðamálunum sem við hér á Alþingi höfum verið að burðast með að leiðrétta á undanförnum árum en ekki tekist nægilega vel til, en það er jöfnun á dreifikostnaði raforku um allt land. Að mínu mati er hér um réttlætismál að ræða, að allir íbúar landsins sitji við sama borð er kemur að kostnaði heimila eða fyrirtækja vegna raforku, sem er einn af grunnþáttunum í okkar umhverfi. En fyrir okkur á landsbyggðinni sem höfum verið að berjast fyrir uppbyggingu og öflugu atvinnulífi þá er það staðreynd að þetta er einn af þeim þáttum sem skipta miklu máli. Kostnaður við dreifingu raforku er mismikill í dreifbýli og þéttbýli og hefur farið vaxandi. Til að stuðla að jöfnun á þeim kostnaðarmun samþykkti Alþingi árið 2004 sérstök lög um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku. Markmið laganna er að stuðla að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku til almennra notenda. Samkvæmt lögum skal greiða niður kostnað almennra notenda vegna dreifingar raforku á þeim svæðum þar sem Umhverfis- og orkustofnun hefur heimilað sérstakar dreifbýlisgjaldskrár í samræmi við ákvæði raforkulaga. Til að standa straum af jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku er innheimt sérstakt jöfnunargjald af raforku sem fer um dreifiveiturnar. Þeirri fjárhæð sem ákveðin er í fjárlögum hverju sinni í samræmi við innheimt jöfnunargjald skal skipt hlutfallslega eftir orkunotkun dreifbýlisgjaldskrár svæðanna miðað við kostnað dreifiveitu.
Virðulegur forseti. Til þess að ná jöfnun, fullri jöfnun, þarf að hækka orkureikninga íbúa á höfuðborgarsvæðinu um tæplega 420 kr. á mánuði. Þá standa íbúar alls landsins jafnfætis þegar kemur að kostnaði vegna nýtingar okkar sameiginlegu auðlinda og innviða. Þetta er sanngirnismál sem við hljótum að vera sammála um að leysa.