Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fjölbreytileiki í atvinnulífi skiptir landsbyggðirnar miklu máli og að öflugir innviðir séu til staðar. Stjórnvöld hafa í gegnum árin reynt að fjölga opinberum störfum án staðsetningar með það að markmiði að fjölga óstaðbundnum störfum úti um landið. Reynslan hefur sýnt að það auðveldar fjölskyldum að flytja út á land og taka starfið með sér eða að ráða sig í starf án staðsetningar í fjarvinnslu. Baráttan fyrir því að halda þessum störfum og opinberum störfum almennt á landsbyggðunum er þó stöðug og það er óásættanlegt að stöðugt þurfi að verja þessi störf. Frekar ættu stjórnvöld og einkageirinn að spýta enn frekar í, því að mannauður er víða úti um allt land.
Við lifum á miklum umbrotatímum með gervigreindinni og tækniframförum á öllum sviðum og mikilvægt er að stjórnvöld hafi frumkvæði að mótun framsækinnar atvinnustefnu sem nýtist íbúum vítt og breitt um landið og komandi kynslóðum. Störf sem eru í sátt við umhverfið og sjálfbæra þróun en verða ekki eingöngu knúin áfram af ósjálfbærum hagvexti og græðgi.
Það vill oft gleymast að lítil og meðalstór fyrirtæki eru víða burðarásar í atvinnulífinu og talið er að stærstur hluti launþega vinni hjá þannig fyrirtækjum. Í kjördæmaviku var ánægjulegt að upplifa að það er víða hugur í fólki, frumkvöðlar víða og víða er atvinnusköpun í gangi. Það er mikilvægt að tryggja rekstrarumhverfi þessara minni fyrirtækja sem oftar en ekki sitja ekki við sama borð og stórfyrirtækin hvað varðar aðgengi að lánsfé og aðstöðu og búa við flókið og íþyngjandi regluverk.
Fjölbreytileiki í atvinnulífi um land allt er lykilatriði fyrir öflugar landsbyggðir og byggðafestu ásamt fjölbreytileika í sjávarútvegi, auknum stuðningi við landbúnað og öfluga nýsköpun. Það er því mikilvægt sem aldrei fyrr að stjórnvöld vandi vel þá vinnu sem fram undan er við að móta atvinnustefnu fyrir Ísland til næstu ára og nýti til þess þau gögn og þekkingu sem liggur fyrir hjá fjölda aðila í þjóðfélaginu svo skapa megi fjölbreytt og vel launuð störf til framtíðar um allt land.