Störf þingsins.
Frú forseti. Fyrir fáum vikum greindi ég frá því úr þessum ræðustóli að brögð væru að því að það væri margfaldur munur á því sem greitt væri fyrir uppsjávarfisk sem veiddur væri úr sömu torfunni eftir því hvort aflanum væri landað í Færeyjum eða þá til vinnslu í eigu útgerðar hér á landi. Áætlað er að þessi svakalegi verðmunur hafi leitt til gríðarlegrar tekjuskerðingar sjómanna og þar með minni skatttekna ríkissjóðs og sjávarútvegsfélaga. Til að fá nánari upplýsingar um stöðuna fékk ég Verðlagsstofu skiptaverðs á fund atvinnuveganefndar fyrr í vikunni og í máli forsvarsmanns Verðlagsstofu kom það annars vegar fram að stofnunina skorti greiðan aðgang að skilaverði sjávarafurða frá Skattinum og hins vegar að þau takmörkuðu gögn sem stofnunin hefði yfir að ráða bentu eindregið í eina átt, þ.e. að það væri gríðarlegur óútskýrður verðmunur á afla lönduðum í Færeyjum eða á Íslandi. Nauðsynlegt er því að tryggja greiðan aðgang Verðlagsstofu að skilaverði og efla stofnunina, en nú vinna aðeins þrír hjá stofnuninni sem hefur það hlutverk að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu uppgjöri. Verðmæti sjávarfangs er mikið, það er vel á annað hundrað milljarða kr. árlega.
Í ljósi þeirrar samþjöppunar sem er orðin í sjávarútvegi, samþættri virðiskeðju og þeirri freistni sem hún býður upp á er nauðsynlegt að stórefla starfsemina. Á vordögum 2024 var lagt fram frumvarp sem gaf Verðlagsstofu skýra heimild til aðgangs að umræddum gögnum en sú breyting náði ekki fram að ganga. Í sjálfu sér er óskiljanlegt að það þurfi einhverja heimild í lögum til þess að Skatturinn miðli upplýsingum til opinberra aðila sem augljóslega tryggja rétt skattskil. (Forseti hringir.) Ég skora hér á fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra að fara hratt og vel yfir málið og bæta úr þannig að Verðlagsstofa hafi bæði tök og heimildir til þess að geta rækt hlutverk sitt af kostgæfni og í samræmi við lög.